Logi: Þetta verður svakaleg úrslitakeppni Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. mars 2015 13:30
Logi Gunnarsson, skotbakvörður Njarðvíkur, verður í eldlínunni með félögum sínum í kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Dominos-deildarinnar í körfubolta. „Þetta er bara skemmtilegasti tíminn. Þó maður hafi verið í mörg ár erlendis eru það alltaf íslensku úrslitakeppnir sem standa upp úr eftir ferilinn því þar er maður að spila á móti strákum sem eru með manni í landsliðinu og eru góðir félagar. Þetta er sérstakur tími,“ segir Logi við Vísi. Njarðvíkingar höfnuðu í fjórða sæti deildarinnar, en þeir voru nokkuð góðir eftir áramót og Logi býst við Njarðvíkingum sterkum í úrslitakeppninni. „Ég tel okkur hafa verið á góðum skriði eftir áramót, sérstaklega eftir að við fengum Stefan Bonneau. Víddin í leiknum okkar er meiri og ógnin frá honum er svakaleg þannig það opnast fyrir fleiri leikmenn. Því tel ég möguleika okkar mjög góða,“ segir Logi, en hvaða lið eru líklegust? „KR-ingarnir hafa verið sterkastir og Tindastóll. Þetta hafa verið stöðugustu liðin í vetur. En svo eru lið eins og við, Stjarnan og Keflavík sem geta farið langt. Þegar litið er yfir allan hópinn eru það KR og Tindastóll sem mönnum finnst að ættu að fara alla leið.“ „Ég man ekki eftir svona jafnri deild. Þetta gerir boltann bara skemmtilegri, áhorfið verður meira og spennan í úrslitakeppninni verður svakaleg,“ segir Logi Gunnarsson. Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Real rústaði Salzburg og vann riðilinn Fótbolti Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Sport Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira