Pavel nær úrslitakeppninni | Rifan í lærinu fundin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2015 14:54 Pavel Ermolinskij. Vísir/Þórdís Inga
Pavel Ermolinskij mun ekki vera með KR-liðinu í þremur síðustu leikjum liðsins í Dominos-deildinni samkvæmt frétt á heimasíðu KR en þar kemur einnig fram að að hann ætti að geta spilað með KR-liðinu í úrslitakeppninni. Eftir læknisskoðun í dag er loks komið í ljós hvers eðlis meiðslin eru sem Pavel Ermolinskij varð fyrir í bikarúrslitunum gegn Stjörnunni. Það hefur greinst smá rifa í vöðva aftan á lærinu. Hún er á „góðum stað” og á að gróa á fjórum vikum samkvæmt læknisráði. Hann verður því að öllum líkindum orðinn leikfær þegar úrslitakeppnin hefst. Þetta eru góðar fréttir fyrir KR-inga þar sem menn í Vesturbænum voru búnir að búa sig undir það versta, sérstaklega í ljósi þess að erfitt reyndist að greina meiðslin almennilega. Pavel missir því af leikjunum þremur sem eftir eru í Dominos-deildinni, gegn Stjörnunni í kvöld, Þór Þorlákshöfn á sunnudaginn í DHL-höllinni og Fjölni í Dalhúsum eftir viku. Úrslitakeppnin hefst 19-20 mars og ætti Pavel að verða leikfær þegar að henni kemur, ef allt gengur að óskum. Pavel Ermolinskij endar því tímabilið með þrefalda tvennu að meðaltali en hann er með 13,3 stig, 10,5 fráköst og 10,3 stoðsendingar að meðaltali í fimmtán leikjum.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira