Óskar Bjarni búinn að lofa að mæta með 1998-strípur í Höllina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2015 11:30 Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna. Vísir/Ernir
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna, gaf sínum mönnum sérstakt loforð kæmist liðið í bikarúrslitaleikinn í Laugardalshöllinni. Valsmenn, sem eru á toppnum í Olís-deild karla, drógust á móti FH í undanúrslitunum sem fara fram föstudaginn 27.febrúar næstkomandi. Vinni Valsmenn leikinn ætlar Óskar Bjarni að mæta með sautján ára gamla hárgreiðslu í úrslitaleikinn. „Stundum hef ég misst eitthvað út úr mér og þá þarf ég að standa við þau orð, " sagði Óskar Bjarni í viðtali við Hans Steinar Bjarnason á RÚV í gær. Óskar Bjarni var í miklu stuði eftir sigur kvennaliðs Vals í bikarúrslitaleiknum í fyrra. „Í fyrra lofaði ég einhverju splitt-stökki ef við myndum vinna. Ég kann ekkert að fara í slíkt en þegar maður er búinn að vinna titil og við unnum Stjörnuna með stelpunum þá, þá varð ég að gera það þótt að það hafi verið frekar misheppnað," sagði Óskar Bjarni. „Núna var ég að tala um það fyrir löngu síðan að ég myndi taka fram einhverjar strípur sem ég hafði tjaldað árið 1998. Ég sagði að ef strákarnir færu í bikarúrslitin þá muni ég tjalda þessari greiðslu," sagði Óskar Bjarni. „Ef svo vel fer að við vinnum FH sem verður gríðarlega erfitt þá fer ég náttúrulega ekki í einhverjar strípur á laugardagmorgninum. Ég þarf því að standa við stóru orðin og kaupa einhverjar bónus-strípur," sagði Óskar Bjarni en það má finna viðtalið í íþróttapakka RÚV í gær eða með því að smella hér.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira