Skvettubræður og Kyle Korver í þriggja stiga keppninni í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2015 23:15 Stephen Curry og Klay Thompson. Vísir/Getty
Þriggja stiga skotkeppnin á Stjörnuhelgi NBA-deildarinnar í körfubolta verður stjörnum prýdd en nú er orðið ljóst hvaða leikmenn ætla að taka þátt að þessu sinni. Heitasta bakverðaparið í deildinni, Skvettubræðurnir frá Golden State Warroirs, Stephen Curry og Klay Thompson, ætla báðir að vera með sem og besta þriggja stiga skytta deildarinnar, Kyle Korver hjá Atlanta Hawks. Allir þrír eru frábærar skyttur. Stephen Curry skoraði tíu þrista og 41 stig í sigri á Dallas á miðvikudagskvöldið, Klay Thompson skoraði 9 þrista og 37 stig í einum leikhluta á móti Sacramento á dögunum og Kyle Korver er með bestu þriggja stiga nýtinguna í deildinni en hann hefur hitt úr 53,2 prósent þriggja stiga skota sinna. Hinir leikmennirnir sem höfðu tilkynnt um þátttöku eru þeir James Harden hjá Houston Rockets, Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers, Wesley Matthews hjá Portland Trailblazers, J.J. Redick hjá Los Angeles Clippers og Marco Belinelli hjá San Antonio Spurs sem hefur titil að verja. Kyrie Irving vann keppnina hinsvegar árið á undan Þriggja stiga keppnina fer fram laugardaginn 14. febrúar í Barclays Center í Brooklyn en Stjörnuleikurinn er síðan spilaður í Madison Square Garden kvöldið eftir.
NBA Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Undanúrslit Meistaradeildarinnar hefjast Sport Fleiri fréttir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Jakob og Linards framlengja veru sína í KR Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs „Ég má ekki segja leyndarmál“ Sindri einum leik frá úrslitaeinvíginu Keflavík - Haukar 98-81 | Allt jafnt í einvíginu „Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Breiðablik mun berjast um sæti í Bónus deildinni Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í viðbót Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Martin með stigahæstu mönnum í sigri Sjá meira