Grindvíkingar unnu framlenginguna 18-3 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2015 21:23 Jón Axel Guðmundsson. Vísir/Daníel
Grindvíkingar unnu sinn fjórða leik í röð í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið sótti tvö stig í Borgarnes en Grindavík þurfti framlengingu til að vinna Skallagrímsliðið 95-80. Grindavík vann aðeins 2 af fyrstu 9 leikjum sínum á tímabilinu en liðið er nú komið inn í mjög harða baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Magnús Þór Gunnarsson skoraði 24 stig fyrir Skallagrímsliðið á móti sínum gömlu félögum en það dugði ekki til. Grindavík skoraði fjögur síðustu stig leiksins og tryggði sér framlengingu sem liðið vann síðan 18-3. Hinn ungi Jón Axel Guðmundsson var hetja gestanna úr Grindavík. Hann jafnaði metin á vítalínunni og skoraði síðan 7 af 23 stigum sínum í framlengingunni. Rodney Alexander var stigahæstur hjá Grindavík með 25 stig og 11 fráköst en Tracy Smith Jr. skoraði 25 stig fyrir Skallagrím. Magnús Þór hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leik en allt Grindavíkurliðið hitti úr 5 af 8 þriggja stiga skotum sínum. Staðan var 25-24 fyrir Skallagrím eftir fyrsta leikhlutann en Grindavíkurliðið var tveimur stigum yfir í hálfleik, 50-48, og með fjögurra stiga forskot fyrir lokaleikhlutann.Skallagrímur-Grindavík 80-95 (25-24, 23-26, 17-19, 12-8, 3-18)Skallagrímur: Tracy Smith Jr. 25/6 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 24, Sigtryggur Arnar Björnsson 11/4 fráköst/7 stoðsendingar, Davíð Ásgeirsson 11, Daði Berg Grétarsson 7, Egill Egilsson 2.Grindavík: Rodney Alexander 25/11 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 23, Ólafur Ólafsson 18, Ómar Örn Sævarsson 11, Jóhann Árni Ólafsson 8/7 stoðsendingar, Oddur Rúnar Kristjánsson 3, Þorsteinn Finnbogason 3, Hilmir Kristjánsson 2, Daníel Guðni Guðmundsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Einar tekur við Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira