Dóttir fyrrum NBA-leikmanns spilar með kvennaliði Vals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2015 16:45 Lee Mayberry í leik á móti Brian Shaw í Miami Heat. Vísir/Getty
Bandaríski bakvörðurinn Taleya Mayberry mun spila með liði Vals í seinni hluta Dominos-deild kvenna í körfubolta en Valsmenn hafa gert samning við þessa 23 ára gömlu stelpu sem útskrifaðist frá Tulsa-háskólanum. Taleya Mayberry kemur í staðinn fyrir Joannu Harden sem yfirgaf Val þegar þrír leikir voru eftir af fyrri umferðinni en Harden var þriðji stigahæsti leikmaður fyrri umferðarinnar með 26,3 stig að meðaltali í leik. Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, staðfesti komu Taleyu Mayberry við Vísi og segir að verið sé að vinna í því að fá leikheimild fyrir hana fyrir fyrsta leikinn á nýju ári sem verður gegn KR 7. janúar næstkomandi. Taleya Mayberry á frægan körfuboltapabba en faðir hennar Lee Mayberry spilaði 496 leiki í NBA-deildinni frá 1992 til 1999 og var með 5,1 stig og 3,6 stoðsendingar að meðaltali í þeim. Lee Mayberry spilaði fyrir Milwaukee Bucks (1992–1996) og Vancouver Grizzlies (1996-1999). Hann vann brons með bandaríska landsliðinu á HM í Argentínu 1990.Taleya Mayberry átti flottan háskólaferil með Tulsa en hún endaði sem annar stigahæsti leikmaður skólans og komst líka upp í annað sætið í stoðsendingum og þá hafa aðeins tveir leikmenn Tulsa-skólaliðsins hafa stolið fleiri boltum. Mayberry var með 15,3 stig, 3,5 fráköst, 3,3 stoðsendingar og 2,4 stolna bolta að meðaltali í 114 leikjum fyrir skólann.
Dominos-deild kvenna NBA Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 Dagskráin í dag: Stórleikur Víkings og KR í Bestu deildinni Sport Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira