Sverrir Þór skilar liðum sínum alltaf í lokaúrslitin um titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2014 08:00 Sverrir Þór er á sínu sjötta tímabili sem þjálfari og í sjötta sinn með lið í lokaúrslitum. Fréttablaðið/Daníel
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, heldur áfram að bæta við magnaða hefð sína að fara alltaf með sín lið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. Grindavík vann sannfærandi og glæsilegan sigur á Njarðvík í oddaleik undanúrslita Dominos-deildar karla og lið Sverris hafa því spilað til úrslita undanfarin fjögur ár og í öll sex skiptin sem hann hefur þjálfað meistaraflokkslið. Sverrir Þór gerði Grindavík að Íslandsmeisturum í fyrra og hafði veturinn á undan unnið tvöfalt með kvennalið Njarðvíkur. Njarðvíkurkonur fóru líka í lokaúrslitin árið á undan og Sverrir Þór fór einnig með kvennalið Keflavík í úrslitaeinvígið bæði tímabilin sem hann þjálfaði liðið frá 2004 til 2006. Grindavíkurliðið hefur ennfremur komist í bikarúrslitaleikinn bæði árin hans í Grindavík og vann bikarinn fyrr í vetur. Sverrir Þór er því búinn að vera með lið sín í bæði úrslitum Íslandsmótsins og úrslitum bikarkeppninnar undanfarin þrjú tímabil. Sverrir Þór var einnig í lokaúrslitunum sem leikmaður Keflavíkur vorið 2010 og þetta er því fimmta tímabilið í röð þar sem hann tekur þátt í lokaúrslitum í annaðhvort karla- eða kvennaflokki. Í raun hefur Sverrir Þór aðeins misst af því að vera í lokaúrslitum þrisvar sinnum á síðustu þrettán tímabilum en það var árin 2007 til 2009. Frá og með tímabilinu 2001-2002 hefur Sverrir Þór tekið þátt í ellefu lokaúrslitum sem annaðhvort leikmaður (5 sinnum) eða þjálfari (6 sinnum).
Dominos-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Fótbolti Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Fótbolti Í beinni: KA - Valur | Pedersen nálgast markametið Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira