Stólarnir áfram fullkomnir á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2014 20:44 Svavar Atli Birgisson var flottur í kvöld. Vísir/Ernir
Tindastóll verður með fullkominn heimavallarárangur yfir jólin eftir 36 stiga stórsigur á Skallagrími, 104-68, í Dominos-deild karla í kvöld en þetta var lokaleikur liðanna fyrir jólafrí. Tindastóll, sem er nýliði í deildinni, hefur unnið alla fimm leiki sína í Síkinu í vetur, en liðið tapaði sínum fyrsta leik í tæpa tvo mánuði á Ásvöllum í leiknum á undan. Stólarnir eru áfram í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir taplausu liði KR-inga. Pétur Rúnar Birgisson átti fínan leik hjá Tindastól en hann var með 14 stig og 11 stoðsendingar. Myron Dempsey var stigahæstur Stólanna með 27 stig en þeir Darrel Keith Lewis (20 stig) og Svavar Atli Birgisson (16 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar) voru einnig atkvæðamiklir í kvöld. Tracy Smith Jr. var með 29 stig og 15 fráköst fyrir Skallagrím og Páll Axel Vilbergsson skoraði 19 stig. Stólarnir voru aftur komnir í gírinn í kvöld og sigur liðsins var öruggir. Tindastóll var 29-21 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með sex stiga forskot í hálfleik, 44-38. Tindastólsmenn stungu síðan endalega af í þriðja leikhlutanum sem liðið vann 30-12. Við það brotnuðu Borgnesingar og Tindastólsliðið kom muninum upp í 36 stig fyrir leikslok.
Dominos-deild karla Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Í beinni: Serbía - Ísland | Er allt klárt fyrir EM? Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Fótbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira