Skýrsla FIFA er brandari 14. nóvember 2014 09:41 Dyke ásamt Michel Platini, forseta UEFA. vísir/getty
Enska knattspyrnusambandið er allt annað en sátt við skýrslu siðanefndar FIFA sem var birt í gær. Þrátt fyrir stanslausar sögur um mútuþægni í kringum HM 2018 og 2022 voru Rússar og Katarmenn hreinsaðir af ásökunum um mútur og þess í stað var ráðist á Englendinga sem hafa verið óhræddir við að setja sig upp á móti æðstu herrum alþjóða knattspyrnusambandsins. „Þessi skýrsla er brandari og allt þetta mál reyndar," sagði Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, og bætti við að málið liti afar illa út fyrir FIFA. „Ég get ekki með nokkru móti tekið þessa skýrslu alvarlega. Það er með ólíkindum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá FIFA og hafa lengi gert. Ég hef ekki trú á því að FIFA sé heiðarlegt samband og hefur ekki verið það í mörg ár." Það var þýskur dómari, Hans-Joachim Eckert, sem gerði skýrsluna fyrir FIFA en hann byggði hana á vinnu bandaríska lögfræðingsins, Michael Garcia. Sá eyddi tveimur árum í að rannsaka spillingu hjá FIFA. Aðeins fjórum tímum eftir að skýrslan kom út var Garcia búinn að kvarta yfir henni og ætlar að kæra hvernig FIFA hefur farið með hans vinnu. „Þetta lítur mjög illa út fyrir FIFA. Maðurinn sem stóð að rannsóknunni segir að skýrslan endurspegli ekki hans vinnu. Það er alvarlegt mál fyrir FIFA. Garcia-skýrslan er ekki einu sinni rétt samkvæmt Garcia sjálfum," sagði Dyke.
Enski boltinn FIFA Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Fleiri fréttir Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira