Kobe ætlar ekki að stökkva frá sökkvandi skipi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2014 19:00 Kobe Bryant. Vísir/Getty
Tímabilið hefur byrjað skelfilega hjá Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en liðið hefur tapað fjórum fyrstu leikjunum sínum og aðalnýliði liðsins fótbrotnaði í fyrsta leik. Kobe Bryant hefur líklega aldrei verið jafnlangt frá því að vinna sjötta meistaratitilinn á ferlinum og einmitt nú. Hann er orðinn 36 ára og það styttist óðfluga í síðasta leikinn. Kobe Bryant er samt ekkert á því að sækjast eftir því að vera skipt til liðs sem á möguleika á því að vinna NBA-titilinn. „Ég heyri af umræðunni um að Kobe ætti að losa sig undan samningnum og komast að hjá liði sem á möguleika á því að vinna titilinn. Það er ekki eitthvað sem ég geri og ég er einstaklega tryggur Lakers," sagði Kobe Bryant. Kobe Bryant hefur skorað 24,8 stig á 32,0 mínútum í fyrstu fjórum leikum Lakers-liðsins en hefur þó aðeins hitt úr 41 prósent skota sinna. Los Angeles Lakers tapaði síðast fjórum fyrstu leikjum sínum í NBA-deildinni veturinn 1957-58 en þá var félagið staðsett í Minneapolis. Það er ekki alltof mikil bjartsýni að fyrsti sigurinn sé að detta inn á næstunni því liðið spilar við Phoenix Suns, Charlotte Hornets og Memphis Grizzlies í næstu þremur leikjum sínum.
NBA Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 Dagskráin í dag: Stórleikur Víkings og KR í Bestu deildinni Sport Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira