Íslensku leikmennirnir komnir með 70 mörk í Noregi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2014 11:15 Pálmi Rafn Pálmason. MYND/LSK.NO
Pálmi Rafn Pálmason og Sverrir Ingi Ingason voru báðir á skotskónum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær en Pálmi Rafn skoraði þrennu fyrir Lilleström á móti Start. Þessi fjögur íslensku mörk í norsku deildinni í gær þýða að íslensku leikmennirnir í deildinni eru búnir að skora 70 mörk í norsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og halda því áfram að bæta metið sem þeir settu í lok september. Íslenskir leikmenn höfðu mest áður skorað samtals 42 mörk á einu tímabili í norsku úrvalsdeildinni og eru því langt komnir með að tvöfalda gamla íslenska markametið í norsku deildinni. Viðar Örn Kjartansson er langmarkahæstur íslensku leikmannanna en hann hefur samt ekki skorað nema eitt mark í síðustu fimm leikjum Vålerenga. Viðar Örn er samt ennþá með tólf marka forskot á næstu menn og á markakóngstitilinn vísan. Fimmtán íslenskir knattspyrnumenn hafa skorað í norsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og það má sjá lista yfir markaskor þeirra hér fyrir neðan.Mörk íslensku leikmannanna í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu: Viðar Örn Kjartansson, Valerenga 25 Pálmi Rafn Pálmason, Lilleström 7 Björn Daníel Sverrisson, Viking 6 Jón Daði Böðvarsson, Viking 5 Matthías Vilhjálmsson, Start 5 Steinþór Freyr Þorsteinsson, Viking 4 Guðmundur Þórarinsson, Sarpsborg 4 Björn Bergmann Sigurðarson, Molde 3 Sverrir Ingi Ingason, Viking 3 Indriði Sigurðsson, Viking 3 Hjörtur Logi Valgarðsson, Sogndal 1 Guðmundur Kristjánsson, Start 1 Birkir Már Sævarsson, Brann 1 Hólmar Örn Eyjólfsson, Rosenborg 1 Eiður Aron Sigurbjörnsson, Sandnes Ulf 1
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira