The Knife hættir eftir tónleikana í Reykjavík Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 22. ágúst 2014 10:30
Systkinin Karin og Olof Dreijer, sem skipa raftónlistardúettinn The Knife, tilkynntu það á heimasíðu sinni í gær að tónleikaferðalagið sem þau eru á núna verði þeirra síðasta. Síðan buðu þau uppá mjög dularfull skilaboð:A handfull elf peeThat’s my soulSpray it alloverFill the bowlLegs astrideAn axe to grindGenerous actions with the speed of lightWithout you my life would be boringSee you on the dance floor…/Olof and Karin, The Knife Karin staðfestir það síðan í viðtali við Dazed að komið sé að endalokum The Knife. „Við hættum þegar við klárum tónleikaferðalagið í nóvember, þetta er okkar síðasta tónleikaferðalag. Okkur ber ekki skylda til að halda áfram, þetta ætti eingöngu og alltaf að vera gaman,“ segir hún en ekki er ljóst hvað tekur við hjá Karin. „Ég ætla að hugsa um hvað gerist næst þegar við klárum tónleikaferðalagið,“ segir hún en bróðir hennar heldur áfram að vinna með tónlistarmanninum Houwaida Hedfi. The Knife var stofnuð árið 1999 og kemur fram á Iceland Airwaves í haust. Það verða þeirra síðustu tónleikar en aðdáendur þeirra geta einnig séð sveitina í Stokkhólmi þann 31. október, Gautaborg 1. nóvember, Berlín 3. nóvember og London 6. nóvember.
Airwaves Tónlist Tengdar fréttir Hljómsveitin The Knife spilar á Iceland Airwaves Þetta er í fyrsta skipti sem The Knife kemur fram á Íslandi. 21. ágúst 2014 11:00 Mest lesið Robert Wilson er látinn Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Dagur er líka listunnandi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira
Hljómsveitin The Knife spilar á Iceland Airwaves Þetta er í fyrsta skipti sem The Knife kemur fram á Íslandi. 21. ágúst 2014 11:00