Þór tekur við Valskonum: Ég held að það búi meira í þessu liði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2014 18:30
Helena Ólafsdóttir sem þjálfað hefur Val í Pepsi-deild kvenna í fótbolta hætti í gær sem þjálfari liðsins og nú síðdegis varð það ljóst hver tekur við þjálfun Valsliðsins. Hinn nýi þjálfari Vals í Pepsi-deild kvenna er Þór Hinriksson en hann hefur undanfarið þjálfað annan flokk kvenna hjá Val. Þór er fimmtugur og hefur meðal annars verið aðstoðarþjálfari hjá Val og Keflavík í meistaraflokki karla. Auk þess þjálfaði Þór á sínum tíma yngri flokka í Hollandi. Valtýr Björn Valtýsson ræddi við Þór í kvöldfréttum Stöðvar tvö en Þór tekur við Valsliðinu í sjöunda sæti deildarinnar. Valur gerði markalaust jafntefli við FH í síðasta deildarleik og datt út úr bikarnum í leiknum á undan. "Valsmenn höfðu samband við mig rétt fyrir hádegið í dag," sagði Þór við Valtý Björn en sagði hann strax já? "Maður neitar ekki félagi sínu. Þeir óskuðu eftir þessu og ég sagði já við því," sagði Þór. "Ég reikna með því að mannskapur Valsliðsins sé betri en staðan í dag gefur til kynna. Ég hitti Eddu á eftir og þá förum við yfir málin," sagði Þór. "Liðið hefur spilað mjög vel á köflum í sínum leikjum og það hefur ekki allt fallið með liðinu. Ég held að það búi meira í þessu liði," sagði Þór. Allt viðtalið er nú aðgengilegt inn á Sjónvarpsvef Vísis eða með því að smella á myndina hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti England - Ísland | Mæta Evrópumeisturunum eftir skellinn gegn heimsmeisturunum Fótbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Formúla 1 Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira