NBA í nótt: Spurs meistari í fimmta sinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. júní 2014 09:00 Vísir/AP
San Antonio Spurs varð í nótt NBA-meistari í fimmta sinn í sögu félagsins með sigri á Miami Heat, 104-87, í fimmta leik liðanna í lokaúrslitum. San Antonio var sannfærandi í lokaúrslitunum og vann rimmunna, 4-1. Þetta var fimmti titill félagsins frá upphafi en Tim Duncan hefur tekið þátt í þeim öllum. Þetta var fjórði titill þeirra Tony Parker og Manu Ginobili. Þessi sömu lið áttust við í lokaúrslitunum í fyrra og hafði þá Miami betur í oddaleik. Í nótt kom ekkert annað til greina en sigur og byrjuðu LeBron James og félagar af miklum krafti og komust mest sextán stigum yfir strax í fyrsta leikhluta. „Við vorum frábærir í fyrsta leikhluta en eftir það voru þeir með betra liðið. Þess vegna eru þeir meistarar árið 2014,“ sagði James eftir leikinn en hann varð stigahæstur í sínu liði með 31 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst.Kawhi Leonard var kjörinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninar en hann skoraði 22 stig fyrir Spurs og tók tíu fráköst. En þegar það kom að baráttu „stóru þriggja“ leikmanna liðanna höfðu þeir Duncan, Parker og Ginobili betur gegn James, Dwyane Wade og Chris Bosh enda sigursælasta tríó í sögu NBA-úrslitanna. Bosh var með þrettán stig í nótt og Wade ellefu en hann nýtti aðeins fjögur af tólf skotum sínum í leiknum.
NBA Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Sjá meira