Bayern München tvöfaldur meistari annað árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. maí 2014 20:44 Arjen Robben skorar fyrsta mark leiksins. Vísir/Getty
Bayern München tryggði sér þýska bikarmeistaratitilinn með 2-0 sigri á Dortmund í úrslitaleik sem fór fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín. Þetta er annað árið í röð sem Bayern verður bikarmeistari (í 17. sinn alls) og jafnframt annað árið í röð sem liðið vinnur bæði deild og bikar í Þýskalandi. Það er því óhætt að segja að Spánverjanum Pep Guardiola hafi tekist nokkuð vel til á sinni fyrstu leiktíð með þýska stórliðið. Leikurinn var heldur tíðindalítill, en Dortmund komst næst því að skora í venjulegum leiktíma þegar Dante, varnarmaður Bayern, bjargaði á línu frá Mats Hummels. Leikmenn Dortmund vildu meina að boltinn hefði verið kominn inn fyrir línuna, en dómararnir voru ekki á sama máliBayern reyndist sterkara í framlengingunni. Arjen Robben kom liðinu yfir á 107. mínútu eftir fyrirgjöf frá Jerome Boateng. Stuðningsmenn Dortmund eru líklega komnir með nóg af Hollendingnum, en hann skoraði einnig sigurmarkið þegar liðin mættust í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu síðasta vor.Thomas Müller gulltryggði svo sigurinn þegar hann skoraði annað mark Bayern í uppbótartíma framlengingarinnar eftir skyndisókn. Þetta var síðasti leikur pólska framherjans Roberts Lewandowski fyrir Dortmund, en hann gengur í raðir Bayern að tímabilinu loknu.
Þýski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira