Óttast að Þorleifur hafi slitið krossband Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. mars 2014 22:15 Þorleifur Ólafsson gæti hafa lokið keppni. Vísir/Valli
Þátttöku Þorleifs Ólafssonar, leikmanns Grindavíkur, í úrslitakeppninni í Dominos-deild karla í körfubolta gæti verið lokið en hann meiddist illa í leik gegn Þór Þorlákshöfn. Þorleifur fór af velli meiddur strax í fyrsta leikhluta og tók ekki frekari þátt í leiknum. SverrirÞór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, tjáði blaðamanni Vísis á vellinum að óttast væri að hann hefði slitið krossband í hné. Ef meiðslin eru svo alvarleg er tímabilið á enda hjá Þorleifi. Þorleifur lét meiðslin þó ekki aftra sér í að segja dómurunum til syndanna í leikslok. „Það fer þarna eitthvað á milli þeirra, Björgvins (Dómara) og Lalla (Þorleifs). Ég heyrði það ekki nákvæmlega en sá að hann fékk brottrekstrarvillu sem skiptir þó kannski ekki öllu máli enda líta meiðslin hans ansi alvarlega út.“ sagði Sverrir. Grindvíkingar voru allir sem einn afar ósáttir við frammistöðu dómaratríósins í kvöld. „Þetta var bara hálfgerður skrípaleikur hjá þeim, endalausar villur og mér fannst þetta bara detta út í vitleysu. Mér sýndist Þórsararnir ekki heldur vera sáttir við þá. En staðan er bara 1-1 í þessu einvígi þó það hafi mikið gengið á. Nú þurfum við bara að huga að næsta leik á fimmtudaginn,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Enski boltinn Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Sport Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira