Þór/KA sækir markvörð alla leið til Suður-Afríku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2014 18:45 Roxanne Barker. Vísir/NordicPhotos/Getty
Þór/KA hefur samið við þrjá erlenda leikmenn fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild kvenna. Það kemur fram á heimasíðu félagsins að Kayla Grímsley og Tahnai Annis leiki báðar áfram með liðinu auk þess að Þór/KA hefur fengið til sín suður-afríska landsliðsmarkvörðinn Roxanne Barker.Roxanne Barker er 23 ára og 180 sm á hæð og þessi öflugi markvörður lék síðast með Stellanbosch í Suður-Afríku en þar áður með Pepperdine University í bandaríska háskólaboltanum. Barker kemur í stað Victoriu Alonzo sem lék með norðanliðinu síðari hluta síðasta tímabils. Roxanne Barker var í Ólympíuliði Suður-Afríku í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í London 2012. Hún spilaði einn af þremur leikjum liðsins, stóð í markinu í 1-4 tapi á móti Svíum. Roxanne Barker spilaði 79 leiki með Pepperdine University frá 2009 til 2012, fékk á sig 0,9 mörk í leik, varði 82 prósent skota sem á hana komu og hélt marki sínu hreinu í 31 leik. Pepperdine University vann 47 af þessum 79 leikjum og tapaði aðeins 10 þeirra þar af engum á lokaárinu.Kayla Grimsley og Tahnai Annis hafa báðar leikið með Þór/KA-liðinu síðustu tvö tímabil og þær munu leika áfram með liðinu. Leikmennirnir áttu stóran þátt í því að Þór/KA-liðið varð Íslandsmeistari 2012.Vísir/NordicPhotos/Getty
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Formúla 1 England - Ísland | Mæta Evrópumeisturunum eftir skellinn gegn heimsmeisturunum Fótbolti Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira