Áframhaldandi ofbeldi í Kænugarði Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 26. janúar 2014 12:45 Ofbeldi hefur stigmagnast eftir að lög tóku gildi sem bönnuðu mótmæli. vísir/afp
Viktor Yanukovych, forseti Úkraínu, bauð í gær stjórnarandstöðumönnum að taka sæti forsætisráðherra og vara- forsætisráðherra í þeim tilgangi að binda endi á mótmæli og stigvaxandi ofbeldi í Kænugarði. Stjórnarandstaðan hefur nú hafnað tilboðinu. Mótmælin í Úkraínu hafa að mestu farið friðsamlega fram undanfarna tvo mánuði, en eftir að Yanukovych forseti tilkynnti í síðustu viku um ný lög sem bönnuðu með öllu mótmæli í landinu urðu átökin harðari og ofbeldi stigmagnaðist. Forsetinn sagði svo á fundi með trúarlegum leiðtogum á föstudag að hann myndi ábyrgjast að mótmælendalögunum yrði breytt þannig að þeir sem handteknir voru fyrir litlar sakir myndu verða frjálsir ferða sinna. Stjórnarandstaðan krafðist þess þá að hann segði af sér og að boðað yrði til kosninga. Stjórn og stjórnarandstaða funduðu í gær þar sem Yanukovych reyndi að miðla málum og bauð leiðtogum stjórnarandstöðunnar að taka sæti forsætisráðherra og vara-forsætisráðherra. Skilyrðin fyrir tilboðinu voru að lög sem banna mótmæli í landinu yrðu ekki felld úr gildi og ekki yrði boðað til kosninga á næstunni. Stjórnarandstaðan hafnaði tilboðinu, og ætlar sér að ná völdum í næstu forsetakosningum. Til harðra átaka kom í Kænugarði í nótt en mótmælendur hafa náð ráðhúsinu þar í borg á sitt vald. Hundruð mótmælenda eru eftirlýstir af lögreglu og hafa hátt í fjörtíu verið handteknir. Stjórnarandstaðan segir sex hafa látið lífið í mótmælunum í síðustu viku, en lögreglan hefur staðfest þrjú dauðsföll.
Úkraína Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira