Elísa verður ekki með ÍBV í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2014 15:28 Elísa Viðarsdóttir. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði og lykilmaður kvennaliðs ÍBV, mun ekki spila með ÍBV-liðinu í Pepsi-deild kvenna í fótbolta á komandi tímabili en þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu Elísu og ÍBV. Elísa, sem er yngri systir Margrétar Láru Viðarsdóttir, er 22 ára varnarmaður sem hefur bæði spilað sem miðvörður og sem bakvörður í ÍBV-liðinu. Hún er eina A-landsliðskona ÍBV í dag og því mikill missir fyrir kvennalið ÍBV. Elísa hefur gengt fyrirliðastöðunni hjá ÍBV undanfarin fjögur tímabil þar af hefur hún verið aðalfyrirliði liðsins undanfarin tvö sumur. Elísa spilaði alla 18 leiki ÍBV í Pepsi-deildinni síðasta sumar og lék ennfremur átta A-landsleiki á síðustu tveimur árum. Elísa hefur leikið 54 leiki í efstu deild fyrir ÍBV.Fréttatilkynning ÍBV og Elísu: Eftir langt, gott og gæfuríkt samstarf hafa ÍBV og Elísa ákveðið að leiðir skilji í bili og mun Elísa leika með nýju félagi á komandi leiktímabili. Elísa kveður félagið með söknuði enda verið einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár ásamt því að vera fyrirliði. Félagið þakkar Elísu innilega framlag sitt og hlakkar til að sjá hana aftur í búningi ÍBV í framtíðinni. Þá vill Elísa þakka öllum sínum liðsfélögum, stjórn og stuðningsmönnum fyrir þennan frábæra tíma sem hún hefur átt hjá ÍBV. Elísa tók þátt í endurreisn kvennaknattspyrnu hjá félaginu og skilur við liðið eftir að hafa tekið þátt í að koma því á meðal þeirra bestu.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta dónalegt“ Handbolti Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Handbolti Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Enski boltinn Hafþór hrósar læknum „Steraleikanna“ og segist treysta þeim alveg Sport Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Handbolti Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Handbolti Uppgjöfin fyrir Mbappé hafi markað endalok Alonso Fótbolti Extra-leikarnir: „Fannst þessi einkunnagjöf lykta af smá Kópavogsmeðvirkni“ Körfubolti Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Enski boltinn „Hlutir sem ég hefði ekki getað gert ef ég væri að spila“ Körfubolti Fleiri fréttir Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Sjá meira