Mengun hinna ilmandi snúða Hildur Sverrisdóttir skrifar 21. september 2013 07:30 Þytur í laufum og árniður trufla okkur minna en umferðarniður. Við höfum meira þol gagnvart hljóðum sem við erum vön og tökum sem sjálfsögðum. Því heyrum við varla fuglasönginn en pirrumst yfir tónlistaróm í grenndinni. Það er áhugavert að velta upp hvaða fleiri hlutum í umhverfi okkar við höfum vanist þannig að þeir trufla okkur ekkert, þó við myndum taka þeim með fyrirvara ef þeir kæmu fyrst til sögunnar nú.Hefðu allir vegirnir verið samþykktir? Í allri umræðu um umhverfisvernd samtímans má ímynda sér fólk hrylla við tilhugsuninni um að leggja vegi þvers og kruss um náttúruperlurnar án nokkurrar málamiðlunar við sjálfsagða náttúruvernd. Við mótmæli vegna byggingu Hallgrímskirkju myndi nú bætast við grenndarkynning með sjónarmiðum um skuggavarp og skerðingu útsýnis og mótmæli um „að trúarlegt kennimerki yrði kennileiti borgarinnar“. Á kirkjulegum nótum koma líka blessaðar kirkjuklukkurnar upp í hugann – kæmust þær í gegnum hagsmunaaðilakynningu? Þessar hvellandi bjöllur sem óma um hverfi borgarinnar á ókristilegum tímum – eða væntanlega kristilegum. Mikilvægur þáttur borgarsamfélags er að hagsmunir allra séu hafðir í huga. Skipulagsferlin bera þess sem betur fer merki og reynt að tryggja að sem flestir fái sanngjarna aðkomu að ákvörðunum. Og oft hafa mótmæli íbúa bjargað verðmætum eins og Bernhöftstorfunni.En það er líka mikilvægt að borgin sé í mótun. Borgin er ekki myndastytta, hún á ekki að staðna heldur þróast í takt við nýja tíma. Skipulagsskynjun okkar er allajafna íhaldssöm og það er mannlegt að geta frekar ímyndað sér hlutina eins og þeir eru í dag en að ímynda sér eitthvað allt annað. Kannski mun til dæmis framtíðarkynslóðum þykja jafnskrítin tilhugsun að það hafi einu sinni verið flugvöllur í Vatnsmýri og minni kynslóð finnst skrítið að það hafi verið lækur í Lækjargötu. Eflaust mætti segja að ef öll hagsmunasjónarmið samtímans um skipulag borgarinnar hefðu alltaf verið til staðar hefði borgin í raun einfaldlega ekki byggst. Ef íbúar við Hringbraut hefðu mótmælt harðlega fyrirhugaðri atvinnustarfsemi í fjölbýlishúsi vegna lyktarmengunar og næturrasks, væri ekkert Björnsbakarí. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hildur Sverrisdóttir Mest lesið Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Bókin er minn óvinur, en mig langar samt í verknám! Davíð Bergmann Skoðun Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun Hvað er að frétta af humrinum? Jónas Páll Jónasson Skoðun Hanna Katrín og Co, koma til bjargar Björn Ólafsson Skoðun Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Ilmurinn af jarðolíu er svo lokkandi Sævar Helgi Lárusson Skoðun Sigrar og raunir íslenska hestsins Elín Íris Fanndal Skoðun Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina Heimir Már Pétursson Skoðun
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun
Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina Heimir Már Pétursson Skoðun
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun
Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina Heimir Már Pétursson Skoðun