NBA: Bryant á hækjum eftir tap Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2013 11:00 Kobe Bryant Mynd/Nordic Photos/Getty
Los Angeles Lakers tapaði í nótt á móti Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta og það sem verra er að Kobe Bryant yfirgaf höllina í Milwaukee á hækjum eftir að hafa meiðst í leiknum.Milwaukee Bucks vann 113-103 heimasigur á Los Angeles Lakers. Larry Sanders skoraði 13 ad 21 stigi sínu í þriðja leikhluta og bæði Ersan Ilyasova og Brandon Jennings voru með 20 stig. Bucks-liðið var fyrir leikinn búið að tapa fjórum leikjum í röð. "Löppin bólgnaði aðeins upp en ég verð í lagi," sagði Kobe Bryant við blaðamenn eftir leikinn en hann spilaði rúmlega 36 mínútur í leiknum og sýndi engin veikleikamerki inn á vellinum. Hann kom hinsvegar á hækjum út úr búningsklefanum. Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers en 18 þeirra komu af vítalínunni. Steve Nash skoraði 16 stig og Dwight Howard var með 15 stig og 15 fráköst. Los Angeles Lakers hefur nú aðeins hálfan leik í forskot á Utah Jazz í baráttunni um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitkeppnina vestan megin. Þetta var fjórða tap Lakers-liðsins í síðustu fimm leikjum.Paul George skoraði 24 stig fyrir Indiana Pacers í 103-78 sigri á Dallas Mavericks en Dallas-menn eiga einnig möguleika á að taka umrætt áttunda sæti. Dirk Nowitzki skoraði 21 stig fyrir Dallas.Úrslit úr öllum leikjum NBA-deildarinnar í nótt: Milwaukee Bucks - Los Angeles Lakers 113-103 Dallas Mavericks - Indiana Pacers 78-103 Phoenix Suns - Sacramento Kings 103-117
NBA Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Sjá meira