NBA í nótt: Tvær flautukörfur hjá Johnson Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2013 09:00 Joe Johnson er hér fagnað í nótt. Mynd/AP
NBA-deildin í körfubolta fór aftur af stað í nótt eftir hlé sem var gert vegna stjörnuhelgarinnar. Níu leikir voru á dagskrá gærkvöldsins. Brooklyn Nets vann ótrúlegan sigur á Milawukee, 113-111, í framlengdum leik. Joe Johnson, leikmaður Brooklyn, átti stóran þátt í sigrinum. Johnson jafnaði leikinn í lok venjulegs leiktíma með þriggja stiga flautukörfu. Hann tryggði svo sínum mönnum sigurinn með annarri flautukörfu í framlengingunni, þótt ótrúlega megi virðast. Alls skoraði hann 24 stig í leiknum en þeir Brook Lopez og Deron Williams komu næstur með nítján hvor. Nets hafði tapað þrettán leikjum í röð gegn Milwaukee fyrir leik liðanna í nótt. Brandon Jennings átti stórleik fyrir Milwaukee og skoraði 34 stig. Ersna Ilyasova var með 21 stig. Besta lið deildarinnar, San Antonio, hélt uppteknum hætti og vann Sacramento, 108-102. Tony Parker var með 30 stig og ellefu stoðsendingar í leiknum en þetta var fimmtándi sigur liðsins í síðustu sextán leikjum þess. San Antonio hefur unnið 43 leiki af 55 til þess og er einnig með bestan árangur á útivelli, þar sem liðið hefur unnið 21 leik af 31. Ekkert gengur hjá Golden State sem tapaði sínum sjötta leik í röð í nótt, í þetta sinn fyrir Utah, 115-101. Al Jefferson var með 24 stig fyrir Utah og Gordon Hayward sautján.Úrslit næturinnar: Washington - Toronto 88-96 Orlando - Charlotte 92-105 Brooklyn - Milwaukee 113-111 Detroit - Memphis 91-105 New Orleans - Chicago 87-96 Denver - Boston 97-90 Utah - Golden State 115-101 Sacramento - San Antonio 102-108 Phoenix - Portland 102-98
NBA Mest lesið Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu, Suðurnesjaslagur og van Gerwen mætir til leiks Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira