Tíu Málaga-menn náðu jafntefli á Camp Nou Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2013 22:26 Mynd/AFP
Barcelona og Málaga gerðu 2-2 jafntefli í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska bikarsins en spilað var á heimavelli Barcaelona, Camp Nou. Það lið sem hefur betur mætir annaðhvort Real Madrid eða Valencia í undanúrslitunum en Real vann Valencia 2-0 í fyrri leiknum í gærkvöldi. Tíu Málaga-menn náðu að skora jöfnunarmarkið á 90. mínútu leiksins en það skoraði Ignacio Camacho eftir aukaspyrnu frá Duda. Malaga lék manni færri síðustu fimmtán mínútur leiksins en tókst engu að síður að skora. Málaga er spútnikliðið í spænska boltanum í vetur en er eins og stendur í fimmta sæti deildarinnar 23 stigum á eftir Barcelona-liðinu sem hefur yfirburðarforystuí toppsætinu. Málaga komst í 1-0 á 25. mínútu með marki Manuel Iturra en það tók Barcelona innan við fimm mínútur að jafna og komast yfir. Lionel Messi jafnaði leikinn á 29. mínútu og rúmri mínútu síðar kom Carles Puyol Barca í 2-1 með skalla eftir hornspyrnu frá Thiago Alcântara. Málaga spilaði síðustu fimmtán mínúturna manni færri eftir að varamaðurinn Nacho Monreal var rekinn útaf á 75. mínútu. Börsungum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í lokin og þeir fengu síðan á sig jöfnunarmark í blálokin eins og áður sagði.
Spænski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira