Reynt að semja um vopnahlé 21. nóvember 2012 00:00 Bera húsgögn út úr ónýtu húsi í Gasaborg Ísraelsher hefur varpað sprengjum á meira en þúsund skotmörk á Gasaströnd síðustu vikuna.AFPNORDIC/AFP
Fulltrúar Egypta hafa síðustu daga lagt mikla vinnu í að fá Ísraela og Palestínumenn til að semja um vopnahlé og gerðu sér vonir um að af því yrði í gær, nærri viku eftir að Ísraelar hófu loftárásir á Gasa. Ekkert samkomulag hefur náðst. Ísraelar hafa gert það að skilyrði að Palestínumenn hætti að skjóta sprengjuflaugum frá Gasa yfir landamærin til Ísraels, en Hamas-samtökin krefjast þess á móti að Ísraelar aflétti einangrun Gasasvæðisins. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til Mið-Austurlanda í gær til að taka þátt í friðarviðræðunum. Hún hugðist hitta ísraelsk stjórnvöld í Jerúsalem, palestínsk stjórnvöld í Ramallah á Vesturbakkanum og egypsk stjórnvöld í Kaíró. Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, upplýsti í gær Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að taki Ísraelar ákvörðun um að senda landherinn inn á Gasasvæðið, þá verði það ekki skammvinn aðgerð svipuð landhernaði Ísraela á Gasaströnd fyrir fjórum árum, heldur líkari hernaði Ísraela á Vesturbakkanum meðan seinni Intifada-uppreisn Palestínumanna stóð yfir á fyrstu árum aldarinnar. Þau átök kostuðu þúsundir mannslífa. - gb
Fréttir Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Sjá meira