Lántakar geti brugðist við sveiflum 15. júní 2012 07:30 Jón Finnbogason
Mikilvægt er að lántakar með óverðtryggð húsnæðislán geti brugðist við sveiflum í greiðslubyrði. Þá skiptir máli fyrir lántaka með verðtryggð lán að kaupmáttur lántaka og raunverð íbúðahúsnæðis haldist nokkurn veginn í hendur á lánstímabilinu. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi Íslandsbanka og VÍB, eignastýringarþjónustu bankans, um óverðtryggða og verðtryggða vexti húsnæðislána og sparnaðar. Á fundinum ræddi Jón Finnbogason, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, verðtryggð og óverðtryggð húsnæðislán. Benti hann á að verðtryggð húsnæðislán hafa þann kost að greiðslubyrði þeirra er hlutfallslega létt í upphafi lánstímans sem getur hentað ákveðnum hópum, til dæmis ungu fólki. Þá er meiri stöðugleiki í greiðslubyrði en á móti þarf lántaki að sætta sig við hægari eignamyndun. Þá sagði hann enn fremur mikilvægt fyrir þá sem taka verðtryggð lán að kaupmáttur lántaka og raunverð íbúðahúsnæðis haldist nokkuð í hendur á lánstímabilinu. Þá sagði hann þá sem taka óverðtryggð húsnæðislán njóta mun hraðari eignamyndunar en þurfa á móti að sætta sig við þyngri greiðslubyrði í upphafi og mögulegar sveiflur í greiðslubyrði. Lántakar með óverðtryggð lán þurfi því að geta brugðist við sveiflum í greiðslubyrði. Myndband af fundinum í gær er aðgengilegt á vefsíðu VÍB.- mþl
Fréttir Mest lesið Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Sjá meira