Noah hættur að nota byssufagnið sitt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2012 18:00 Joakim Noah. Mynd/NordicPhotos/Getty
Joakim Noah hjá Chicago Bulls hefur undanfarin tímabil fagnað körfum sínum með því að þykjast skjóta úr byssum. Noah hefur nú ákveðið að leggja byssufagnið sitt á hilluna í kjölfarið á harmleiknum í Newtown í Conneticut í Bandaríkjunum. Joakim Noah átti góðan leik í sigri á móti Boston Celtics í vikunni þar sem að hann var með þrefalda tvennu, skorað 11 stig, tók 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Bandarískir blaðamenn voru fljótir að taka eftir því að byssufagnið var hvergi sjáanlegt í leiknum og spurðu hann því út í það á blaðamannafundi eftir leikinn. „Það er ekki hægt að grínast með svona hluti. Það eru alltof margir að deyja útaf byssum og við erum að glíma við stórt vandamál. Ég er með þessu að reyna að sýna smá samúð vegna þess sem er í gangi," sagði Joakim Noah. Joakim Noah byrjaði á þessu byssufagni sínu tímabilið 2010-11. „Ég setti niður stökkskot í andlitið á Keith Bogans og sýndi honum byssurnar í kjölfarið. Þetta átti að vera grín en við erum í þannig aðstæðum í dag að þetta getur ekki talist fyndið lengur," sagði Noah sem tók það fram að hann sjálfur hafi aldrei átt byssu. Tuttugu börn og sex fullornir dóu í skotárásinni í barnaskólanum í Newtown.
NBA Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Sjá meira