Fimm marka sigur hjá stelpunum og sætið tryggt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2012 14:34 Elín Metta Jensen skoraði tvennu annan leikinn í röð. Mynd/Daníel
Stelpurnar í íslenska 19 ára landsliðinu í fótbolta eru komnar áfram í milliriðil eftir öruggan 5-0 sigur á Moldavíu í dag í undankeppni Evrópumótsins en þetta var annar leikur liðsins í riðlinum sem leikinn er í Danmörku. Elín Metta Jensen og Telma Þrastardóttir komu báðar að þremur mörkum í þessum leik. Elín Metta skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og lagði að auki upp mark fyrir Sigríði Láru Garðarsdóttur Telma lagði upp bæði mörkin fyrir Elínu Mettu og skoraði síðan fjórða markið sjálf í seinni hálfleiknum eftir sendingu Láru Kristínar Pedersen. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði síðan fimmta markið úr vítaspyrnu eftir að Aldís Kara Lúðvíksdóttir var felld í teignum. Íslenska liðið vann 4-0 sigur á Slóvakíu í fyrsta leik sínum og hefur því unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum. Elín Metta hefur skorað fjögur mörk í þessum tveimur leikjum og Telma Þrastardóttir er búin að gefa þrjár stoðsendingar. Síðasti leikur liðsins í riðlinum verður gegn heimastúlkum á fimmtudaginn en þessar tvær þjóðir hafa þegar tryggt sér sæti í milliriðlum. Danir unnu Slóvaka í dag, 5–0, og hafa sex stig líkt og Ísland.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Kansas frá Kansas til Kansas Sport Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira