Sparkaði ekki í bolta í rúma tvo mánuði en það dugði ekki til Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. september 2012 17:42 Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Daníel
Margrét Lára Viðarsdóttir, aðalmarkaskorari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki með í lokaleikjum íslenska liðsins í undankeppni EM 2013. Þetta eru leikir á móti Norður-Írlandi og Noregi og þar geta íslensku stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári. Það er mikið áfall fyrir landsliðið að vera án markadrottningarinnar í þessum mikilvægu leikjum. Margrét Lára samdi nýverið við Kristianstad í Svíþjóð og fór full bjartsýni til Svíþjóðar enda ekki búin að sparka í bolta í tvo mánuði. Meiðslin langþráðu sem hafa plagað hana undanfarin ár voru þó fljót að taka sig upp. „Hún var í sumar að hreyfa sig á annan hátt heldur en fótbolta. Hún var að hjóla mikið, synda og að styrkja sig. Við vonuðumst til að hún myndi ná sér af þessum meiðslum og verða betri. Hún fór síðan til Kristianstad og markmiðið hennar var að spila á móti Malmö," sagði Sigurður Ragnar. „Hún fór á tvær knattspyrnuæfingar fyrir þann leik en fékk strax aftur gömlu verkina. Hún var mjög slæm og gat ekki komið í þessi verkefni til þess að beita sér að einhverju viti," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson á blaðamannafundi í dag. Margrét Lára er búin að skora 66 mörk í 82 A-landsleikjum þar af 8 mörk í 8 leikjum liðsins í undankeppni EM. „Þetta er búið að vera mjög erfitt fyrir hana í langan tíma en samt er ótrúlegt hvað hún hefur náð að spila þrátt fyrir þessi meiðsli. Hún var markahæst í Svíþjóð með þessi meiðsli og spilaði fyrir Potsdam, eitt besta félagslið í Evrópu, með þessi meiðsli," sagði Sigurður Ragnar. „Maður getur bara ímyndað sér hvernig hún verður ef hún nær sér góðri af þessum meiðslum sem hún vonandi gerir. Hún ætlar að leita sér frekari lækninga og jafnvel fara í aðgerð í framhaldinu. Það er ekki búið að greina þetta þannig að við vitum ekki alveg með hana," sagði Sigurður Ragnar.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira