Mourinho blæs á möguleika Chelsea gegn Barcelona Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. apríl 2012 19:30 Mourinho stýrði Chelsea á árunum 2004-2008. Nordic Photos / Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir fyrrum lærisveina sína hjá Chelsea eiga litla möguleika gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Spænska liðið sé einfaldlega mun líklegra til sigurs. Real Madrid sló Apoel Nicosia frá Kýpur út samanlagt 8-2 eftir 5-2 sigur í síðari viðureign liðanna í Madrid í gærkvöldi. Á sama tíma sló Chelsea út Benfica með 2-1 sigri á Stamford Bridge og samanlagt 3-1. Aðspurður hvers vegna Mourinho taldi að Barcelona kæmist áfram sagði knattspyrnustjórinn litríki: „Vegna þess að liðið er frábært. Barcelona er ekki aðeins líklegra til sigurs heldur mun líklegri," sagði Mourinho sem telur að keppnin komi til með að standa á milli sinna manna, Bæjara og Barcelona. „Ef ég á að vera hreinskilinn tel ég að Real Madrid mæti ekki Chelsea í úrslitaleiknum. Það gæti orðið Bayern gegn Barcelona. Ég tel einfaldlega að það verði ekki Real Madrid gegn Chelsea og við vitum öll hvers vegna," sagði Mourinho sem hrósaði kýpverska liðinu Apoel fyrir sína framgöngu í Meistaradeildinni í vetur. „Ég tel að eftir nokkur ár muni íbúar Kýpur átta sig á afreki Apoel sem stendur upp úr í Meistaradeildinni í ár," sagði Mourinho sem sagði stærra afrek fyrir kýpverska liðið að komast í 8-liða úrslit en að Real, Barcelona eða Bayern ynni titilinn.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 Sjá meira