Colts vill halda Manning en semja upp á nýtt 15. febrúar 2012 15:45
Jim Irsay, eigandi NFL-liðsins Indianapolis Colts, hefur gefið það út að hann vilji halda Peyton Manning hjá félaginu. Hann segir þó ekki koma til greina að halda Manning á þeim samningi sem hann er með. Manning á von á því að fá bónus frá Colts upp á litlar 28 milljónir dollara í mars en félagið getur sagt þeim samningi upp fyrir mánaðarmót. Það mun félagið gera ef Manning fer ekki fram á það sjálfur fyrir þann tíma. Mikil óvissa er um hvort Manning geti spilað aftur en hann er alvarlega meiddur og lék ekkert í vetur. Irsay vill að Manning taki ákvörðunina sjálfur og efast ekki um að Manning skilji af hverju félagið vilji ekki heiðra núverandi samning við þessar aðstæður. "Ég vil að Peyton taki ákvörðunina. Hann veit miðað við þessar bónusgreiðslur að við þurfum að semja upp á nýtt. Ef hann getur spilað aftur þá vil ég að hann verði hjá okkur. Nýr samningur verður þó að taka mið af breyttum aðstæðum," sagði Irsay. Fastlega er búist við því að Colts muni velja leikstjórnandann Andrew Luck fyrstan í nýliðavalinu og Irsay sér fyrir sér að Manning geti alið strákinn upp.
NFL Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Fótbolti Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira