Kvartar til Persónuverndar vegna dagbókar 29. desember 2011 08:00 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Móðir unglingsstúlku hefur lagt fram kvörtun til Persónuverndar vegna birtingar dagbókar stúlkunnar í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Dóttir konunnar kærði lögreglumann á Blönduósi fyrir að hafa káfað á sér innanklæða í fyrra, þegar hún var 15 ára. Málið er nú komið til Héraðsdóms Norðurlands vestra á ný, eftir sýknu þar og ógildingu hennar fyrir Hæstarétti. Ástæða kvörtunar móðurinnar er sú að eiginkona ákærða, sem er skólastjóri grunnskólans á Blönduósi, lagði fram dagbók stúlkunnar til ríkissaksóknara. Þá segist stúlkan ekki hafa gefið samþykki sitt fyrir því að bókin, sem er á tölvutæku formi, yrði send til skólayfirvalda á sínum tíma. Í erindinu segir að meðferð skólastjórans á einkamálefnum stúlkunnar sem lýst er í dóminum sé gróft brot á grundvallarreglu um friðhelgi einkalífs. Sökum þess að málið er enn fyrir dómi, vísaði Persónuvernd því frá. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður skólastjórans og eiginmanns hennar, segir að skólastjórinn hafi afhent dagbókina, eftir að krafa þess efnis barst frá ríkissaksóknara, eins og henni bar skylda til. „Þá verður að líta svo á að héraðsdómur hafi einnig metið það svo að efni dagbókarinnar gæti skipt máli varðandi niðurstöðu sakamálsins," segir meðal annars í bréfi Vilhjálms til Persónuverndar. Því er alfarið hafnað að skólastjórinn hafi brotið lög með áframsendingu dagbókarinnar.- sv
Fréttir Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira