Nærri níutíu látist í fangelsi 1. september 2011 03:00 Sýrlenska stjórnin hefur gripið til harkalegra aðgerða gegn mótmælendum. nordicphotos/AFP
Að minnsta kosti 88 manns hafa látið lífið í fangelsum í Sýrlandi síðustu fimm mánuði, eða frá því að mótmæli og uppreisn gegn Bashar Assad forseta hófust. Tíu hinna látnu voru á barnsaldri. Þetta fullyrða alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International, sem hafa safnað saman frásögnum fólks, meðal annars af pyntingum sem fangar eru beittir. „Þessi mannslát í fangelsum eru að verða óheyrilega mörg og virðast vera framhald á þeirri sömu grimmdarlegu lítilsvirðingu fyrir mannslífum sem við sjáum daglega á götum Sýrlands,“ segir Neil Sammonds hjá Amnesty International. Í nýrri skýrslu frá samtökunum um mannslát í fangelsum í Sýrlandi segir að ummerki á líkum hinna látnu sýni að sumir þeirra hafi mátt þola barsmíðar, svipuhögg, stungur og bruna. Undanfarin ár hafa að meðaltali fimm manns látist árlega í fangelsum í Sýrlandi, að sögn samtakanna. Þessi gríðarlega fjölgun kemur heim og saman við það að handtökum hefur fjölgað mjög síðan uppreisnin hófst. Samtökin segjast hafa upplýsingar um meira en 1.800 manns sem sagðir eru hafa beðið bana síðan uppreisnin hófst. Þúsundir að auki hafa verið handteknar.- gb
Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira