Tónleikahald aftur í tísku 21. apríl 2011 11:00 til Íslands Glenn Frey og félagar í Eagles stíga á svið í Nýju Laugardalshöllinni í júní.
cyndi lauper Söngkonan verður í Eldborgarsal Hörpunnar í júní. Fjöldi erlendra tónlistarmanna og skemmtikrafta er á leiðinni til Íslands á árinu. Mikil fjölgun hefur orðið síðan hrunið varð árið 2008. Tilkoma Hörpunnar spilar stóra rullu. Fréttir af hinum og þessum erlendu skemmtikröftum sem eru á leiðinni hingað til lands hafa verið tíðar að undanförnu. Bandaríska stórhljómsveitin Eagles spilar í Nýju Laugardalshöllinni í júní og rapparinn Busta Rhymes treður upp í Vodafone-höllinni í maí, auk þess sem Elvis Costello, Cyndi Lauper, Jamie Cullum, Afrocubism og spjallþáttastjórnandinn fyrrverandi Larry King stíga öll á svið í Eldborgarsal Hörpunnar á þessu ári. Þegar kreppan skall á haustið 2008 héldu tónleikahaldarar að sér höndum eftir mikla gósentíð árin á undan og þorðu ekkert að gera, sérstaklega vegna lágs gengis krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Síðan þá hefur gengið lagast lítillega, auk þess sem nýja tónleikahöllin Harpa mun sinna listamönnum sem erfitt hefur verið að sinna í gegnum árin. Þetta eru listamenn sem hafa talist of stórir fyrir Háskólabíó, sem tekur um 900 manns í sæti, en að sama skapi of litlir fyrir Laugardalshöll, sem tekur á bilinu 3.000 til 5.000 manns. Eldborgarsalur Hörpunnar tekur 1.500 manns í sæti og sá fjöldi hentar vel fyrir þennan nýja hóp listamanna. Guðbjartur Finnbjörnsson flytur inn Cyndi Lauper og Larry King en fyrir hrun flutti hann inn listamenn á borð við Paul Simon og Cliff Richard. Hann segir að tilkoma Hörpunnar hafi breytt mestu fyrir sig. „Þarna myndaðist möguleiki til að fá þessa „milli-artista“ og fyrir mitt leyti er það stóra málið,“ segir hann um Hörpuna. Einnig telur hann mikilvægt að þurfa ekki lengur að borga margar milljónir fyrir að koma upp hljóða- og ljósabúnaði því hann sé að mestu til staðar í Hörpunni. Hljómgæðin og þægindin sem þar séu skipti auðvitað líka miklu máli. Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu skipuleggur uppselda tónleika Eagles í Nýju Laugardalshöllinni. Aðspurður telur Ísleifur að samspil nokkurra þátta hafi orðið til þess að tónleikahald sé aftur komið í tísku. „Það er liðinn ákveðið langur tími frá hruninu og það var viðbúið að þetta færi einhvern tímann af stað aftur. Núna eru allir að fara af stað á sama tíma og ég held að þessi Eagles-velgengni æsi menn svolítið upp,“ segir Ísleifur. „Harpan kemur svo akkúrat inn á þessum tíma en það er alveg augljóst að það verður ekki uppselt á allt. Þegar það er gríðarlegt framboð af erlendum listamönnum aukast líkurnar á að eitthvað gangi ekki upp.“ Talað hefur verið um að erlendir flytjendur taki lægra gjald en áður fyrir að koma fram bæði hér heima og erlendis. Ísleifur viðurkennir að Eagles hafi farið fram á lægri þóknun nú en fyrir hrun, þegar einnig var reynt að fá sveitina til landsins. Þar spilar inn í almennt dvínandi aðsókn á tónleika erlendis, eftir mikinn vöxt þar undanfarin ár. Að sögn Ísleifs hefur kostnaðurinn við að fá hljómsveitir til Íslands þó ekki lækkað nógu mikið til að vega upp á móti gengisfalli krónunnar og ástandinu hér á landi. freyr@frettabladid.isLíf í tónleikahaldi Sprengja hefur orðið í innflutningi á erlendum tónlistarmönnum að undanförnu. Ísleifur Þórhallsson (til vinstri) segir þó að ekki verði uppselt á alla tónleika. Á næstunni troða meðal annars upp hér Eagles (að ofan), Cyndi Lauper og Elvis Costello.Elvis Costello Tónlistarmaðurinn góðkunni spilar í Hörpunni í nóvember.
Lífið Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Fleiri fréttir Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Sjá meira