Njarðvík stöðvaði sigurgöngu Snæfellsstelpna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 16:52 Shayla Fields var góð í dag. Mynd/Anton
Njarðvík stöðvaði fimm leikja sigurgöngu Snæfellsstelpna með 81-78 sigri í leik liðanna í b-deild Iceland Express deild kvenna í Stykkishólmi í dag. Snæfell er enn á toppnum í B-deildinni en nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum. Erlendu leikmennirnir þrír voru allt í öllu hjá Njarðvík og skoruðu saman 66 af 81 stigi liðsins. Shayla Fields var stigahæst með 34 stig, Dita Liepkaine skoraði 16 stig og tók 19 fráköst og Julia Demirer var með 16 stig og 11 fráköst. Ína María Einarsdóttir var stigahæst af íslensku stelpunum með 6 stig. Monique Martin skoraði 33 stig og tók 15 fráköst fyrir Snæfell og Laura Audere var með 20 stig og 8 fráköst. Berglind Gunnarsdóttir skoraði 14 stig og Hildur Kjartansdóttir var með 11 stig og 6 fráköst. Snæfell var með þriggja stiga forustu eftir fyrsta leikhlutann, 25-22, en Njarðvík snéri við blaðinu í öðrum leikhluta og var komið með tveggja stiga forystu í hálfleik, 42-40. Njarðvíkurliðið hélt síðan tveggja stiga forskoti, 57-55, fyrir lokaleikhlutann. Fjórði leikhlutinn var síðan æsispennandi en gestirnir voru alltaf skrefinu á undan og tryggðu sér góðan útisigur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið England - Ísland | Mæta Evrópumeisturunum eftir skellinn gegn heimsmeisturunum Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport Mansfield - Arsenal | Þreyttar skyttur sækja C-deildarlið heim í bikarnum Enski boltinn Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings Fótbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Fleiri fréttir Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Uppgjörið: Grindavík - Valur 75-83 | Valur vann framlengdan naglbít Leik lokið: Njarðvík - Haukar 98-115 | Haukar mættu í hefndarhug til Njarðvíkur Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Sjá meira