Butler: Hef aldrei búið í litlum bæ áður Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. janúar 2011 15:15 Jaleesa Butler. Mynd/Stefán
Jaleesa Butler var í dag valinn besti leikmaður fyrstu ellefu umferða Iceland Express-deildar kvenna en hún er lykilmaður í toppliði Hamars frá Hveragerði. Hún er á sínu fyrsta tímabili hér á landi og reyndar utan heimalandsins, Bandaríkjanna. Hún hefur skorað að meðaltali 25,3 stig í leik og tekið þar að auki 15,5 fráköst. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig sem og félagið sjálft,“ sagði hún í samtali við Vísi í dag. „Ég er ánægð hjá félaginu enda erum við enn ósigruð. Ég tel að ég hafi bætt mig síðan ég byrjaði að spila með liðinu í haust.“ „Auðvitað kröfðust nýjar aðstæður einhverrar aðlögunar af minni hálfu en körfubolti er alltaf körfubolti og því tók það ekki langan tíma. Það er þó ýmislegt sem hefur komið mér á óvart en sumt ekki. Aðalatriðið er að mér líður vel.“ Butler er fædd og uppalinn í St. Louis í Missouri-fylki. „Ég hef aldrei áður búið í jafn litlum bæ og Hveragerði en það er allt í lagi - ég er hvort sem er svo leiðinleg að ég hangi mest innandyra,“ sagði Butler í léttum dúr. Hún segist vera nokkuð bjartsýn fyrir síðari hluta tímabilsins. „Ég verð að vera það enda erum við ósigruð. Við tökum þó öll lið alvarlega og mörg eru nú að breyta til og styrkja sig. Við viljum bara halda áfram að vinna leiki.“
Dominos-deild kvenna Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira