Ánægjulegur dagur fyrir íslenska fimleika - eitt gull og tvö brons Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2011 18:44 Mynd/Anton
Íslenskt fimleikafólk var að gera góða hluti í dag. Gerplukonur urðu Norðurlandameistarar í hópfimleikum og íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum lenti í þriðja sæti á Norður – Evrópumótinu. Þá vann sameiginlegt lið Stjörnunnar og Ármanns einnig brons hjá blönduðu liðum á Norðurlandamótinu í hópfimleikum. Íslenska kvennaliðið lenti í þriðja sæti á Norður – Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Uppasala í Svíþjóð en karlaliðið varð í fjórða sæti. Thelma Rut Hermannsdóttir var efst íslensku stúlknanna í fjölþrautarkeppninni en hún endaði í 9.sæti. Bræðurnir Róbert og Viktor Kristmannssynir voru jafnir í 7.sæti í fjölþrautarkeppni karla og Ólafur Garðar Gunnarsson varð í níunda sæti. Eins og áður hefur komið fram á Vísi þá sýndu Gerplustelpur styrk sinn og fylgdu eftir Evrópumeistaratitlinum í fyrra með því að vinna gull í kvennaflokki á Norðurlandamótinu í hópfimleikum í Larvik í Noregi og það þrátt fyrir að Íris Mist Magnúsdóttir, aðalstjarna liðsins, hafi ekki getað verið með. Sameiginlegt lið Stjörnunnar og Ármanns lenti síðan í þriðja sæti keppni blandaðra flokka. Í fyrsta sæti þar var lið frá Ollerup þar sem þrjár íslenskar stúlkur voru hluti af liðinu.
Innlendar Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira