Dortmund mun bara selja Götze til liðs utan Þýskalands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2011 19:45 Mario Götze í sigurleiknum á móti Brasilíu á dögunum. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Borussia Dortmund ætlar ekki að selja undrabarnið sitt Mario Götze til annars félags í Þýskalandi en þetta ítrekaði framkvæmdastjórinn Hans-Joachim Watzke í dag. Mario Götze hefur vakið mikla athygli að undanförnu en þessi 19 ára strákur átti mikinn þátt í því að Dortmund varð þýskur meistari á síðustu leiktíð. Mario Götze var með 6 mörk og 15 stoðsendingar á sínu fyrsta alvöru tímabili og var með mark og stoðsendingu í sínum fyrsta leik á þessu tímabili. Götze skoraði líka í sigri Þjóðverja á Brasilíu á dögunum. Stóru klúbbarnir eru farnir að fylgjast með stráknum en Mario Götze er með samning við Dortmund fram í júní árið 2014. Watzke segir að félagið myndi ekki láta freistast af risatilboði frá erkifjendunum í Bayern Munchen. „Bayern getur sleppt því að leggja inn tilboð því það væri afar heimskulegt af okkur að selja hann til þeirra. Mario er búinn að vinna titilinn með okkur, hann er búinn að vera í félaginu í átta ár og fjölskyldan hans býr í borginni. Mario myndi aldrei fara í annað þýskt lið," sagði Hans-Joachim Watzke og bætti við: „Það eru bara fjögur félög í heiminum sem eiga möguleika á því að kaupa hann og ekkert þeirra er staðsett í Þýskalandi," sagði Watzke. Sagan segir að Manchester United hafi mikinn áhuga á því að krækja í kappann ekki síst þar sem félaginu tókst ekki að fá Hollendinginn Wesley Sneijder frá Inter.
Þýski boltinn Mest lesið Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn Jorge Costa látinn Fótbolti „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Markalaust í baráttunni um brúna Í beinni: ÍA - Valur | Bætir Pedersen markametið? Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Sjá meira