Fundu 2.300 milljarða fjársjóð í indversku hofi 4. júlí 2011 13:27
Talið er að fjársjóður sem nýlega fannst í hindúahofi í suðurhluta Indlands gæti verið 20 milljarða dollara virði eða um 2.300 milljarða kr. Þetta samsvarar hálfri annarri landsframleiðslu Íslands. Samkvæmt frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni segir að meðal þess sem fannst í lokuðu herbergi í hofinu voru sekkir með gimsteinum, hálfs meters löng gullkeðja og um 19 kíló af gullmyntum. Fyrir utan gull og gimsteina voru margar styttur af guðum og gyðjum til staðar í herberginu en yfir 100 ár eru síðan þetta herbergi var síðast opnað. Það fylgir sögunni að opna eigi annað svipað herbergi í hofinu sem einnig hefur verið lokað í meir en öld. Hofið sem hér um ræðir var byggt á 16. öld og það er rekið af sjóði sem tilheyrir afkomendum Travancores konungsfjölskyldunnar sem ríkti á svæðinu sem nú tilheyrir héraðinu Kerala í suðurhluta Indlands.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira