Úrslitaleikurinn á Wembley: Gamli og nýi tíminn mætast Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. maí 2011 16:00 Grafík/Vísir.is
Þjálfari Man Utd, Sir Alex Ferguson, hyggur vafalítið á hefndir fyrir 2-0 tapið gegn Barcelona í úrslitaleiknum í Róm fyrir tveimur árum. Ferguson þótti tapið sérstaklega sárt en hann hefur lítið viljað ræða leikinn við fjölmiðla síðan. Sjaldan hefur lið hans verið jafn yfirspilað og gegn liðsmönnum Guardiola það kvöld. Ljóst er að Ferguson vill ekki upplifa slíka niðurlægingu aftur. Hinn reyndi Ferguson hafði fram að því aldrei beðið lægri hlut í úrslitaleik í Evrópukeppni. Með sigri hefði Skotinn skráð nafn sitt í sögubækurnar með sínum þriðja Meistaradeildartitli. Aðeins Bob Paisley, fyrrverandi þjálfari Liverpool, hefur unnið keppnina oftar alls þrisvar sinnum. Ferguson, sem verður sjötugur í lok árs, fær því annað tækifæri til að komast upp að hlið Paisley á laugardaginn. Sigur Barcelona í Róm undir stjórn Guardiola var sögulegur. Guardiola, þá 38 ára, varð yngsti þjálfarinn í sögu keppninnar til að leiða lið sitt til sigurs. Titillinn var hluti af stórkostlegu tímabili hjá Guardiola hans fyrsta ár í starfi en Barcelona vann alla stóru titlana sem í boði voru. Guardiola komst um leið í fámennan hóp manna sem hafa unnið Meistaradeildina sem leikmenn og þjálfarar. Guardiola var nefnilega í liði Barcelona sem sigraði Sampdoria í úrslitaleik keppninnar árið 1992. Leikurinn fór fram á kunnuglegum stað. Gamla Wembley-leikvanginum í Lundúnum sem rifinn var árið 2003 fyrir byggingu leikvangsins sem leikið verður á á laugardaginn.
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Barcelona flýgur til London í kvöld út af eldgosinu Barcelona-liðið mun fljúga til London í kvöld vegna úrslitaleiks Meistaradeildarinnar á laugardaginn. Þetta er tveimur dögum fyrr en áætlað var en ástæðan er að Barcelona-menn eru að reyna að forðast öskuskýið sem er á leiðinni yfir Bretland frá eldgosinu í Grímsvötnum. 24. maí 2011 12:15 Úrslitaleikurinn á Wembley: Messi og Chicharito markahæstir Barcelona frá Spáni og Manchester United frá Englandi mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Wembley leikvanginum á laugardaginn. Argentínumaðurinn Lionel Messi er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar með 11 mörk og Barcelonamaðurinn verður án efa í stóru hlutverki gegn Man Utd. Markahæsti leikmaður enska liðsins í Meistaradeildinni er Javier Hernández eða Chicharito með 4 mörk. 24. maí 2011 22:00 Messi: Hernandez myndi sóma sér vel í Barcelona-liðinu Lionel Messi er á því spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid hljóti að hafa áhuga Javier Hernandez eftir frábæra frumraun hans með Manchester United á þessu tímabili. Hernandez hefur verið lykilmaður í góðum árangri United og Messi hefur hrifist af mexíkóska landsliðsframherjanum. 24. maí 2011 14:15 Barcelona-menn hafa áhyggjur af eldgosinu í Grímsvötnum Eldgosið í Grímsvötnum veldur forráðamönnum Barcelona miklum áhyggjum. Á laugardag keppa Barcelona og Manchester United til úrslita í meistaradeildinni og verður leikur liðanna á Wembley vellinum í Lundúnum. 23. maí 2011 12:30 Beckham: Ferguson getur stoppað Barcelona-liðið David Beckham hefur mikla trú á liði Manchester United á móti Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Wembley á laugardaginn. Beckham telur að ef einhver getur stoppað Barcelona-liðið þá sé það hinn 69 ára gamli stjóri United, Sir Alex Ferguson. 24. maí 2011 14:15 Afdrífarík spurning blaðamanns um Giggs - Ferguson setti hann í bann Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur sett blaðamann Associated Press í bann fyrir að spyrja hann út í Ryan Giggs á blaðamannafundi í dag en hann var haldin fyrir komandi úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á laugardaginn. 24. maí 2011 16:00 Dani Alves: Meiri samstaða í United-liðinu eftir að Ronaldo fór Daniel Alves, bakvörður Barcelona, segir að það hafi haft góð áhrif Manchester United liðið að selja Cristiano Ronaldo til Real Madrid. Síðasti leikur Ronaldo fyrir UNited var þegar liðið tapði 2-0 fyrir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2009 en liðin mætast aftur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley á laugardaginn. 24. maí 2011 15:30 Sir Alex: Það verður ekki auðvelt að velja liðið á Wembley Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að sínir menn séu tilbúnir fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á móti Barcelona á Wembley á laugardaginn en hans sjálfs bíði hinsvegar erfitt verkefni að velja þá ellefu sem fá að byrja leikinn. 25. maí 2011 09:15 Giggs ekki með á opinni æfingu Manchester United Ryan Giggs var ekki með á æfingu Manchester United í dag en æfingin var opin fjölmiðlamönnum sem hefðu örugglega hrúgast að Giggs til þess að fá viðbrögð hans við fréttum helgarinnar. 24. maí 2011 13:00 Geir vonast til þess að komast til London í kvöld Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var á blaðamannafundi KSÍ í dag þegar Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, tilkynnti hópinn sinn fyrir Danaleikinn. Þetta var væntanlega síðasta verkefni Geirs fyrir KSÍ í þessari viku því hann er á leiðinni til Lundúna þar sem hann verður eftirlitsmaður UEFA á úrslitaleik Meistaradeildarinnar á milli Barcelona og Manchester United sem fram fer á Wembley á laugardaginn. 24. maí 2011 14:45 Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira
Barcelona flýgur til London í kvöld út af eldgosinu Barcelona-liðið mun fljúga til London í kvöld vegna úrslitaleiks Meistaradeildarinnar á laugardaginn. Þetta er tveimur dögum fyrr en áætlað var en ástæðan er að Barcelona-menn eru að reyna að forðast öskuskýið sem er á leiðinni yfir Bretland frá eldgosinu í Grímsvötnum. 24. maí 2011 12:15
Úrslitaleikurinn á Wembley: Messi og Chicharito markahæstir Barcelona frá Spáni og Manchester United frá Englandi mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Wembley leikvanginum á laugardaginn. Argentínumaðurinn Lionel Messi er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar með 11 mörk og Barcelonamaðurinn verður án efa í stóru hlutverki gegn Man Utd. Markahæsti leikmaður enska liðsins í Meistaradeildinni er Javier Hernández eða Chicharito með 4 mörk. 24. maí 2011 22:00
Messi: Hernandez myndi sóma sér vel í Barcelona-liðinu Lionel Messi er á því spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid hljóti að hafa áhuga Javier Hernandez eftir frábæra frumraun hans með Manchester United á þessu tímabili. Hernandez hefur verið lykilmaður í góðum árangri United og Messi hefur hrifist af mexíkóska landsliðsframherjanum. 24. maí 2011 14:15
Barcelona-menn hafa áhyggjur af eldgosinu í Grímsvötnum Eldgosið í Grímsvötnum veldur forráðamönnum Barcelona miklum áhyggjum. Á laugardag keppa Barcelona og Manchester United til úrslita í meistaradeildinni og verður leikur liðanna á Wembley vellinum í Lundúnum. 23. maí 2011 12:30
Beckham: Ferguson getur stoppað Barcelona-liðið David Beckham hefur mikla trú á liði Manchester United á móti Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Wembley á laugardaginn. Beckham telur að ef einhver getur stoppað Barcelona-liðið þá sé það hinn 69 ára gamli stjóri United, Sir Alex Ferguson. 24. maí 2011 14:15
Afdrífarík spurning blaðamanns um Giggs - Ferguson setti hann í bann Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur sett blaðamann Associated Press í bann fyrir að spyrja hann út í Ryan Giggs á blaðamannafundi í dag en hann var haldin fyrir komandi úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á laugardaginn. 24. maí 2011 16:00
Dani Alves: Meiri samstaða í United-liðinu eftir að Ronaldo fór Daniel Alves, bakvörður Barcelona, segir að það hafi haft góð áhrif Manchester United liðið að selja Cristiano Ronaldo til Real Madrid. Síðasti leikur Ronaldo fyrir UNited var þegar liðið tapði 2-0 fyrir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2009 en liðin mætast aftur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley á laugardaginn. 24. maí 2011 15:30
Sir Alex: Það verður ekki auðvelt að velja liðið á Wembley Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að sínir menn séu tilbúnir fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á móti Barcelona á Wembley á laugardaginn en hans sjálfs bíði hinsvegar erfitt verkefni að velja þá ellefu sem fá að byrja leikinn. 25. maí 2011 09:15
Giggs ekki með á opinni æfingu Manchester United Ryan Giggs var ekki með á æfingu Manchester United í dag en æfingin var opin fjölmiðlamönnum sem hefðu örugglega hrúgast að Giggs til þess að fá viðbrögð hans við fréttum helgarinnar. 24. maí 2011 13:00
Geir vonast til þess að komast til London í kvöld Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var á blaðamannafundi KSÍ í dag þegar Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, tilkynnti hópinn sinn fyrir Danaleikinn. Þetta var væntanlega síðasta verkefni Geirs fyrir KSÍ í þessari viku því hann er á leiðinni til Lundúna þar sem hann verður eftirlitsmaður UEFA á úrslitaleik Meistaradeildarinnar á milli Barcelona og Manchester United sem fram fer á Wembley á laugardaginn. 24. maí 2011 14:45