Sauber með endurbættan bíl á Spáni 17. maí 2011 16:26 Kamui Kobayahsi á Sauber C30 Ferrari bílnum. Mynd: Sauber F1
Sauber liðið frá Sviss mætir með verulega endurbættan bíl í Formúlu 1 mótið á Spáni um næstu helgi. Keppt verður á Katalóníu brautinni sem er nærri Barcleona. Sauber hefur náð í átta stig í fyrstu fjórum mótunum og Kamui Kobayashi náði þeim árangri að ná í stig í síðasta móti þó hann ræsti af stað úr síðsta sæti, eftir að bíll hans bilaði í tímatökunni. Liðsfélagi Kobayashi, Sergio Perez hefur ekki náð að vinna sér inn stig á árinu, en Kobayashi hefur séð um það fyrir hönd sín og liðsins, í keppni ökumanna og bílasmiða. "Það þekkja allir brautina í Barcelona mjög vel eftir vetraræfingarnar. Bíll okkar virtist góður þar í febrúar og mars. Um næstu mótshelgi verður mikilvægt fyrir okkur að einbeita okkur að uppsetningu bílsins í samræmi við nýju hlutina. Við verðum að nota þá til að bæta stöðu okkar í tímatöku og keppni", sagði Kobyashi um mótið um næstu helgi. Hann segir Katalóníu brautina áhugaverða blöndu af háhraða beygjum, meðalhröðum og hægum beygjum og telur að lokahlutinn, frá tímatökusvæði tvö til endamarks geti reynst vandasamur fyrir Sauber. "Í gegnum tíðina hefur framúrakstur verið þrautin þyngri á þessari braut, en ég tel að stillanlegur afturvængurinn muni gera mótið í ár spennandi. Ég kann vel við notkun þessa búnaðar", sagði Kobayashi, en samkvæmt nýjum reglum getur ökumaður breytt afstöðu aftuvængsins þannig að loftflæði yfir bílinn aukist til muna, svo fremi að ökumaðurinn sé sekúndu eða minna á eftir keppinaut sem taka á framúr. Kobayashi telur að búnaðurinn muni koma að góðum notum um helgina. Perez hlakkar mjög til mótsins á Spáni, eftir heldur brösótt gengi til þessa. Hann náði þó sjöunda sæti aksturslega séð í fyrsta mótinu, en var dæmdur úr leik eins og Kobayashi þar sem liðið reyndist vera með ólöglegan afturvæng á bílum sínum. "Ég hef verið óheppinn í síðustu mótum sen hef tilfinningu fyrir því að þetta breytist í spænska kappakstrinum og að ég nái í stig. Mér kann vel við mig á brautinni og gengur alltaf vel á henni. Við náðum ekki að sýna styrk okkar í Tyrklandi og ég vona að það breytist á Spáni og að við gerum betur í tímatökunni. Ég vona að uppfærslan á bílnum standist væntingar okkar", sagði Perez.
Formúla Mest lesið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Blikar áfram með fullt hús stiga Körfubolti Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti „Bara feginn að við fundum þó leið“ Körfubolti ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum Körfubolti Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Fótbolti Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira