Mittal er ríkasti maður Breta Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. maí 2011 12:15 Lakshmi Mittal er ríkasti maður á Bretlandi. Mynd/ afp.
Stálauðjöfurinn Lakshmi Mittal er ríkasti maður á Bretlandi, samkvæmt lista blaðsins Sunday Times yfir breska auðjöfra sem birtur var um helgina. Ríkustu menn í Bretlandi hafa tapað verulegum hluta auðæva sinna í fjármálakreppunni. Mittal auðgaðist á rekstri stálvinnslufyrirtækisins ArcelorMittal sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum. Þótt Mittel eigi nóg til hnífs og skeiðar hefur hann tapað gríðarlega miklum fjármunum á undanförnum mánuðum. Fullyrt er að hann hafi tapað fimmtungi auðæva sinna í kreppunni, en eignir hans eru nú metnar á 17 milljarða sterlingspunda, eða sem nemur 3200 milljörðum íslenskra króna. Rússneski námueigandinn Alisher Usmanov er annar ríkasti maður á Bretlandi. Þekktasti maðurinn á listanum er síðan án efa Roman Abramovic, sem er þriðji ríkasti maður Bretlands. Abramovich er þekktastur fyrir að vera eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea.
Mest lesið Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur látinn af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira