NBA: Ellefta 50 sigra tímabil Dallas Mavericks í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2011 09:00 Dirk Nowitzki og Jason Terry. Mynd/AP
Það var rólegt í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar það fóru aðeins fram tveir leikir. Dallas vann Minnesota Timberwolves og varð því fimmta liðið til þess að vinna 50 leiki í vetur og New Orleans Hornets hafði betur gegn Utah Jazz eftir framlengingu.Dirk Nowitzki var með 30 stig og 11 fráköst og Jason Terry bætti við 18 stigum þegar Dallas Mavericks vann 104-96 sigur á Minnesota Timberwolves. Dallas Mavericks hefur því unnið 50 leiki á tímabilinu sem liðið er að ná elleftu leiktíðina í röð. Shawn Marion skoraði 17 stig fyrir Dallas og Peja Stojakovic var með 16 stig en þetta var þriðji sigur liðsins í síðustu fjórum leikjum. Anthony Randolph var með 31 stig og 11 fráköst fyrir Minnesota sem lék án Kevin Love sem er meiddur.New Orleans Hornets vann 121-117 útisigur á Utah Jazz eftir framlengingu. Emeka Okafor tryggði New Orleans framlengingu með flautukörfu og varamaðurinn Aaron Gray fór á kostum í framlengingunni og skoraði þar sex stig. David West skoraði 29 stig áður en hann datt illa á höfuðið og var keyrður út af vellinum í hjólastól. Chris Paul skoraði 5 af 24 stigum sínum í framlengingunni. Paul Millsap var stigahæstur hjá Utah með 33 stig en þetta vaer fjórða tap liðsins í röð.
NBA Mest lesið Hnéskel Franks Arons brotnaði Körfubolti „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Íslenski boltinn Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu Sport Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport KR - FH | Heldur sigurgangan áfram? Íslenski boltinn Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Íslenski boltinn Fram - ÍBV | Bæði vilja svara fyrir erfið töp Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík - Grindavík | Sópur á lofti? KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Jakob og Linards framlengja veru sína í KR Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs „Ég má ekki segja leyndarmál“ Sindri einum leik frá úrslitaeinvíginu Keflavík - Haukar 98-81 | Allt jafnt í einvíginu „Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Breiðablik mun berjast um sæti í Bónus deildinni Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í viðbót Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Martin með stigahæstu mönnum í sigri „Við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju“ Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Sjá meira