Lyon og Real Madrid gerðu 1-1 jafntefli í Frakklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 21:42 Karim Benzema fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/AFP
Súperskipting Jose Mourinho virtist vera að létta Lyon-álögunum af Real Madrid en Frakkarnir náðu að tryggja sér 1-1 jafntefli átta mínútum fyrir leikslok í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Varamaðurinn Karim Benzema kom Real yfir á móti sínum gömlu félögum en Bafetimbi Gomis skoraði jöfnunarmark Lyon. Lyon átti besta færið í rólegum fyrri hálfleik en Real Madrid menn mættu miklu grimmari til leiks í þeim seinni eftir væntanlega góða hálfleiksræðu frá þjálfara sínum Jose Mourinho. Cristiano Ronaldo skaut meðal annars í stöngina úr aukaspyrnu og skömmu síðar skallaði Sergio Ramos í slána. Real Madrid komst hinsvegar ekki yfir fyrr en að Mourinho var búinn að skipta Karim Benzema inn á fyrir Emmanuel Adebayor. Benzema var ekki búinn að vera inn á vellinum nema í eina mínútu þegar hann kom Real Madrid í 1-0 á 65. mínútu. Mesut Ozil og Cristiano Ronaldo léku þá vel saman og spiluðu Benzema frían í teignum. Claude Puel gerði í kjölfarið þrjár skiptingar á liði sínu og það virtist hafa góð áhrif því Bafetimbi Gomis jafnaði leikinn átta mínútum fyrir leikslok. Markið kom eftir aukaspyrnu sem Cris skallaði fyrir fætur Gomis.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Álftanes fagnaði eftir svakaleik í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira