Afreksíþróttamenn á Íslandi fái aðstoð við að leggja skóna á hilluna Hjalti Þór Hreinsson skrifar 18. maí 2010 15:00 Sunna Gestsdóttir hélt opinn fyrirlestur um niðurstöður sínar í Háskólanum á Akureyri. HÞH
Íþróttahreyfingin þarf að koma betur að aðstoð afreksíþróttamanna sem eru að leggja skóna á hilluna og íþróttamenn ganga sér svo nærri að þeir kljást við átröskun bæði á ferlinum og eftir að honum lýkur. Þetta kemur fram í niðurstöðum Sunnu Gestsdóttur, frjálsíþróttadrottningu og meistaranema við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Sunna gerði rannsókn fyrir lokaverkefni sitt þar sem reynsla fyrrum afreksíþróttafólks í einstaklingsíþróttum af afreksíþróttamennskunni var könnuð. Sunna keppti sjálf í frjálsum íþróttum í mörg ár en þátttakendur hennar voru tíu og kepptu áður í sundi, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi eða á skíðum. "Ég valdi þátttakendur í þessa rannsókn sem voru íþróttamenn sem höfðu helgað íþróttinni líf sitt í mörg ár og fórnað nánast öllu fyrir hana. Það má kalla þetta atvinnumenn þrátt fyrir að þau hafi ekki alltaf verið á launum," sagði Sunna. Niðurstöður voru þær að drifkrafturinn í íþróttunum var í lang flestum tilvikum innri þættir eins og áhugi, ánægjan af því að bæta sig, læra nýja hluti, vera í góðum félagsskap og metnaður. Ytri þættir höfðu einnig áhrif á drifkraftinn. Langflestum fannst reynslan úr íþróttunum jákvæð þó svo að margar brekkurnar hafi verið þeim erfiðar og voru þátttakendur þakklátir fyrir reynsluna og tækifærin sem íþróttirnar veittu þeim. Þó var einn þátttakandi sem alls ekki myndi vilja ganga í gegnum sama ferli aftur. "Hann lýsti því þegar hann fór í ofþjálfun og hreinlega brann út. Hann var rosalegur keppnismaður, með mikið keppnisskap. Það var mikið álag á hann og hann fann að það voru ytri þættir sem knúðu hann áfram þegar hann var á hátindi ferilsins. Það var ekki af eigin áhuga," sagði Sunna. Neikvæðir þættir íþróttanna voru einvera, sjálfhverfa, meiðsli, ofþjálfun og tómleikinn sem tók við þegar skórnir voru lagðir á hilluna. Þátttakendur lýstu þörf fyrir mun meiri félagslegan, faglegan og fjárhagslegan stuðning en völ var á og töldu að aukinn stuðningur hefði getað létt þeim róðurinn að markmiðum sínum. En af hverju gerði Sunna rannsókn á þessu? "Ég á sjálf langan feril að baki í íþróttum og þegar ég hætti fannst mér það bæði erfitt og skrýtið. Ég var forvitin að vita hvort aðrir íþróttamenn hefðu upplifað sömu tilfinningar," sagði Sunna sem byrjaði að keppa í fullorðinsflokki tólf ára gömul en síðasta mótið hennar var árið 2006. Hún keppti því í 18 ár, með einu barneignahléi. Það sem kom Sunnu mest á óvart var hve íþróttamennirnir gengu nálægt sér til að ná markmiðum sínum. "Það er bæði andlega og líkamlega, þar get ég nefnt átröskun og fólk sem þurfti að nota svefnpillur. Sumt leiddi meira að segja til áfengisneyslu eftir að ferlinum lauk. Þó að álagið hafi verið svona mikið fannst mörgum þetta gefandi og lærdómsríkt." Sunna segir að ekki geri sér allir grein fyrir því hvað íþróttamenn geri mikið til að ná markmiðum sínum. "Fólk fer á ystu brún og reynir á sig andlega og líkamlega. Margir af þátttakendunum litu til baka og áttuðu sig hreinlega ekki á því sem þeir lögðu á sig." "Erfiðleikarnir við að hætta var einnig mjög athyglisvert að skoða. Margir grétu og fannst eins og þeir hefðu misst vin. Það er mjög mikilvægt að íþróttamenn séu í umhverfi þar sem þeim er sýndur skilningur, og þeir þurfa líka stuðning til þess að afleiðingarnar verði ekki alvarlegar þegar íþróttamennirnir hætta." "Ég vil sjá frekari úrbætur á þessu hér heima. Í rannsókninni sem ég las til að undirbúa mig þá komst ég að því að nokkur lönd eru komin með sérstakt fólk í því að leggja skóna á hilluna. Þetta er mikil breyting. Sérstaklega hjá fólki sem þekkir ekkert annað og hefur byggt lífsmyndina sína alfarið á íþróttinni." "Rannsóknir sýna að fyrir þá er erfiðast að leggja skóna á hilluna. Margir fórna miklu og eru kannski ekki með menntun eða hafa ræktað önnur áhugamál," sagði Sunna sem sá sjálfa sig í mörgum aðstæðum sem hún skoðaði hjá öðrum. "Það er mikilvægt að það komi fram að þegar maður fer af stað í svona rannsókn þá byrjar maður á að setjast niður og skrifa eigin upplifun á hlutunum. Það litar þá ekki niðurstöðurnar frá öðrum og maður heyrir eitthvað nýtt frá öllum." "Þess vegna var það margt sem kom mér á óvart þrátt fyrir að ég kannaðist við bæði marga jákvæða og neikvæða hluti," sagði Sunna sem útskrifast í sumar.
Innlendar Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sjá meira