Fullyrt að Sullivan og Gold kaupi 50% í West Ham Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. janúar 2010 00:01 Fréttir af fyrirhugaðri sölu á West Ham hafa verið þrálátar.
Breska blaðið Sunday Mirror fullyrðir að kaupsýslumennirnir David Sullivan og David Gold muni kaupa 50% hlut í West Ham af CB Holding, dótturfélagi Straums. Kaupsamningurinn nemi 50 milljónum punda, eða 10 milljörðum króna. Hugsanlega verði gengið frá kaupunum innan sjö daga. Sunday Mirror segir að Sullivan og Gold sé ekki heimilt að tjá sig um málið vegna trúnaðar. Heimildarmaður blaðsins segi hins vegar að lokasamningur milli aðila sé langt á veg kominn. Mirror segir að CB Holding muni áfram eiga 50% hlut í félaginu. Sullivan og Gold muni hins vegar stýra því og leggja félaginu til fé vegna leikmannakaupa. Fregnir af mögulegri sölu West Ham hafa verið þrálátar upp á síðkastið. Á þriðjudaginn var greint frá því á Sky Sport að hópur bandarískra fjárfesta með aðsetur í London ætlaði að gera tilboð í félagið.
Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira