Meira um Landsdóm og réttlætiskennd 9. október 2010 06:00 Settur saksóknari komst að þeirri niðurstöðu eftir að skýrsla RNA lá fyrir að ekki væri „að svo stöddu tilefni til að efna til sakamálarannsóknar“ á hendur þremur fyrrv. bankastjórum Seðlabankans né forstjóra FME. Þessir virðast því vera lausir allra mála. Ráðherrarnir þrír sátu þá eftir til afgreiðslu hjá þingmannanefndinni. Einhverra hluta vegna og án útskýringa kaus hún að takmarka verkefni sitt við það „að móta afstöðu til ábyrgðar í málinu“ við ákvæði laga um ráðherraábyrgð og þar með þriggja ára fyrningarreglur þeirra. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins er að vísu að finna tvær fullyrðingar er að þessu lúta, sem hvorug fær staðist. Önnur er sú að það falli utan verksviðs þingmannanefndarinnar „að fjalla um mögulega ábyrgð annarra en þeirra sem ráðaherraábyrgðarlögin taka til“, sem er rangt (þó það sé annarra að fjalla um vanrækslubrot bankastjóranna og forstjórans). Og svo hin, að þingmannanefndinni hafi „skv. 6. mgr. 15. gr. laganna um rannsóknarnefndina sérstaklega verið falið að móta afstöðu til hugsanlegrar ábyrgðar í málinu á grundvelli laga um ráðherraábyrgð, nr. 4/1963.“ Tilvísuð 6. mgr. 15. gr. geymir ekki ákvæði um neitt annað en fyrningu, þar sem segir að kosning þingmannanefndarinnar hafi sömu réttaráhrif og kosning rannsóknarnefndar skv. 39. gr. stjórnarskrárinnar til athugunar á störfum ráðherra. Það er þessi þrenging nefndarinnar á verksviði sínu, sem ég tel vera önnur megin „mistök“ Alþingis í þessu máli. Ef raunverulegur vilji var til heiðarlegs uppgjörs gagnvart þjóðinni þá var rangt af nefndinni að takmarka þær tillögur sem hún lagði fyrir Alþingi við þá sem hún áleit að bæru ábyrgð og „sök“ samkvæmt ráðherraábyrgðarlögunum einum. Þegar af þeirri ástæðu að þær aðstæður sem ollu hruninu áttu sér aðdraganda í fyrri gerðum og ákvörðunum, a.m.k. allt frá því að ráðist var í einkavæðingu bankanna eins og gerð er grein fyrir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Því hefði það verið bæði sanngjarnara og réttlátara og í anda jafnræðis að viðbrögð Alþingis hefðu náð til allra þeirra þátta sem skýrsla rannsóknarnefndarinnar fjallar um. Nefndin gat að sjálfsögðu rannsakað og ályktað um þátt fleiri aðila í hruninu og gefið þeim kost á að koma athugasemdum sínum á framfæri. Hún gat síðan eftir avikum lagt til við þingheim að þeir sem hún teldi ábyrga/seka sættu ámæli eða vítum – eins og bent hefur verið á að tíðkast m.a. í Damörku – í stað eða samhliða tillögum um ákærur á grundvelli ráðherraábyrgðarlaganna. Þriðju „mistök“ Alþingis leiða af hinum tveimur, það er atkvæðagreiðslan sjálf um ákærurnar á hendur fyrrv. fjórum ráðherrum. Á Alþingi sitja enn fyrrum samstarfsmenn þeirra ráðherra, sem þingmannanefndin lagði til að yrðu ákærðir og fyrirfram mátti vera ljóst að þeir gætu varla annað en samsamað sig þeim. Auk þessa komu meira að segja nokkrir hinna fyrrnefndu sjálfir til álita sem vanrækslukandidatar. Sumum þeirra ber – enn til viðbótar – heldur ekki saman um ýmis atvik og atburði í undanfara hrunsins við þá sem þingmannanefndin lagði til að yrðu ákærðir. Ég ætla eins og málum er háttað að tvennt brjóti gegn réttlætiskennd almennings. Annars vegar að einn maður skuli standa eftir sem sökunautur fyrir allt sem aflaga fór í stjórnsýslunni um langt árabil og hins vegar að það ráðist af atkvæðagreiðslu samverkamanna, jafnvel venslamanns, hverjir sæta saksókn fyrir Landsdómi og hverjir ekki. Ekki síst fyrir það að sáralítill munur var á sakargiftum þeirra sem þingsályktunartillagan tók til. Vitaskuld áttu samráðherrar þeirra sem tillagan um ákæru tók til að sitja hjá eða víkja sæti, eðli málsins samkvæmt þó ekki væri beinni lagaskyldu til að dreifa. Hvað varðar „sakir“ þess eina fyrrv. ráðherra, sem að óbreyttu mun brátt standa frammi fyrir Landsdómi, þá finnst mér vert að árétta að rannsóknarnefnd Alþingis kvað ekki upp úr um vanrækslu hans skv. lögum um ráðherraábyrgð. Nefndin tók það sérstaklega fram að mat hennar væri aðeins í skilningi ákvæða laganna um rannsóknarnefndina sjálfa „og ekki sambærilegt við mat samkvæmt ákvæðum laga um ráðherraábyrgð“ og ekki dómur, „hún færi ekki með dómsvald“. Ráðherraábyrgðarlögin krefjast þess til sakfellis að sýnt sé fram á ásetning eða stórkostlegt gáleysi og það eru vissulega mikil áhöld um hvort refsiheimildir laganna séu nægilega skýrar. Þó jafna megi Landsdómi til danska ríkisréttarins við mat á því hvort hann fái staðist skv. Mannréttindasáttmála Evrópu er hitt ljóst að málsatvikum og sakarefni Tamila-málsins danska verður ekki jafnað til þeirra sem við stöndum frammi fyrir – og að mínu mati og margra annarra yfirgnæfandi líkur á sýknu Landsdóms. Ber þá enginn ábyrgð á hruninu? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Má ég líka gera upp í evrum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skítamix sem börnin borga Róbert Ragnarsson,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Unga fólkið ber byrðarnar Arnar Birkir Dansson Skoðun Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason Skoðun Arfleifð Davíðs Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Menningin á heima í Kórnum Svava H. Friðgeirsdóttir Skoðun Bandarískir landgönguliðar í Íran Arnór Sigurjónsson Skoðun Við erum í þessu saman Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Hjálp! Baldvin Björgvinsson Skoðun Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn Böðvar Ingi Guðbjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Loksins fá sjónarmið Afstöðu hljómgrunn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Við erum í þessu saman Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Menningin á heima í Kórnum Svava H. Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Landakort samtímans og áttaviti sögunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þétting byggðar og miðsókn – skipulagsstefna sem þjónar ekki öllum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Ómar Þór Kristinsson skrifar Skoðun Í stríði við náttúruna - baráttan um landið Ólafur Valsson skrifar Skoðun Íbúar njóti árangursins Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Unga fólkið ber byrðarnar Arnar Birkir Dansson skrifar Skoðun Skítamix sem börnin borga Róbert Ragnarsson,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Bandarískir landgönguliðar í Íran Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hugsanir okkar eru einkamál: Taugatækni, siðfræði og hugrænt frelsi María K. Jónsdóttir skrifar Skoðun Hjálp! Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Má ég líka gera upp í evrum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Arfleifð Davíðs Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason skrifar Skoðun „Ekkert bendi til þess að það sé raunin“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson skrifar Skoðun Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Ómar Þór Kristinsson skrifar
Skoðun Hugsanir okkar eru einkamál: Taugatækni, siðfræði og hugrænt frelsi María K. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar