Fimm fremstu á ráslínu allir í titilslagnum 25. september 2010 15:44 Fremstu menn á ráslínni á morgun eru allir í fimm manna slagnum um meistaratitilinn.
Fernando Alonso náði besta tíma í tímatökum á Singapúr brautinni í dag á Ferrari, en fremstu ökumennirnir í stigamótinu röðuðu sér í efstu fimm sætin. Það verður því harður slagur um titilinn í keppninni á sunnudag. Alonso varð brotabrotum á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Lewis Hamilton er þriðji á ráslínunni, þá Jenson Button á McLaren og Mark Webber á Red Bull. Þessir kappar eru í titilslagnum og Webber er með 5 stiga forskot á Hamilton, en Vettel er neðstur þessara kappa á stigatöflunni, 24 stigum á eftir Webber. Stigagjöfin er þannig að fyrir sigur fást 25 stig, annað sætið 18 stig, síðan eru 15, 12, 10 og færri stig fyrir næstu sæti á eftir. Tímatakan fór fram í flóðljósum, rétt eins og keppnin á sunnudag, en titilslagurinn verður í algleymingi í ræsingunni. Bein útsending verður frá mótinu á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá kl. 11.30 og þátturinn Endmarkið strax á eftir.
Mest lesið Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valið matareitrun Enski boltinn Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Golf Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Fótbolti Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Fótbolti Ótrúleg varnartölfræði Arsenal í október Fótbolti Er Tóti Túrbó ofmetinn? Körfubolti Dagskráin í dag: Enski boltinn og margt fleira Sport Magic Johnson bætir við enn einum titlinum Sport „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Körfubolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira