Haukar fyrstir til að vinna Þorlákshafnar-Þórsara í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2010 20:53 Gerald Robinson var atkvæðamikill í liði Hauka í kvöld. Mynd/Vilhelm
Haukar slógu í kvöld lærisveina Benedikts Guðmundssonar í Þór Þorlákshöfn út úr 16 liða úrslitum Powerade-bikars karla með tíu stiga sigri, 84-74 í æsispennandi leik á Ásvöllum. Þetta var fyrsta tap Þórsliðsins á tímabilinu en liðið er búið að vinna sjö fyrstu leiki sína í 1. deild karla. Gerald Robinson var atkvæðamikill í liði Hauka með 21 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar en Semaj Inge var síðan með 18 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar. Sveinn Ómar Sveinsson skoraði 13 stig og tók 10 fráköst og Haukur Óskarsson var með 12 stig. Eric James Palm var langatkvæðamestur í Þórsliðinu með 33 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar en hann fékk sína fimmtu villu þegar rúmar 2 mínútur voru eftir. Vladimir Bulut var með 14 stig og 11 fráköst og Philip Perre skoraði 11 stig. Þórsarar byrjuðu betur, komust í 6-0, 9-4 og 13-9 en voru aðeins með tveggja stiga forskot, 23-21, eftir fyrsta leikhlutann. Sami munur var á liðunum í hálfleik en Þórsarar voru þá 44-42 yfir. Haukar voru sterkari í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu 20-14 og voru því 62-58 fyrir lokaleikhlutann. Fjórði leikhlutinn var síðan æsispennandi, Haukar voru með naumt frákast framan af en Þórsliðið komst yfir í 72-71 þegar fimm mínútur voru eftir. Þór var 74-73 yfir þegar 3 mínútur voru eftir en Haukar skoruðu ellefu síðustu stig leiksins og tryggðu sér 84-74 sigur.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira