NBA: Cleveland og Miami unnu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. apríl 2010 22:30 Shaquille O'Neal og LeBron James í leiknum í kvöld. Mynd/AP
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta fyrr í kvöld en tveir til viðbótar eru á dagskrá í nótt. Cleveland er komið aftur á beinu brautina í rimmu sinni gegn Chicago. LeBron James og félagar unnu öruggan sigur á Chicago í kvöld, 121-98, og tóku þar með forystuna í einvíginu, 3-1. Cleveland getur nú tryggt sér sæti í undanúrslitum Austurstrandarinnar með sigri á heimavelli í næsta leik. James fór mikinn í leiknum í kvöld og náði ótrúlegri þrefaldri tvennu. Hann skoraði 37 stig, tók tólf fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. Antawn Jamison kom næstur með 24 stig og Mo Williams var með nítján. Hjá Chicago voru Joakim Noah og Derrick Rose stigahæstir með 21 stig hvor. Noah tók alls 20 fráköst í leiknum. Dwyane Wade fór einnig á kostum þegar að Miami kom í veg fyrir að Boston næði að „sópa" liðinu úr úrslitakeppninni með sigri í dag, 101-92. Wade skoraði 46 stig fyrir Miami í leiknum. Boston er þó enn með forystuna í einvíginu, 3-1, og getur klárað seríuna á heimavelli í næsta leik. Quentin Richardson skoraði 20 stig og Michael Beasley fimmtán. Hjá Boston var Rajon Rondo stigahæstur með 23 stig. Kevin Garnett var með átján og Paul Pierce sextán.Í nótt fara fram tveir leikir sem fyrr segir. San Antonio tekur á móti Dallas en þar hefur San Antonio forystuna, 2-1. Utah mætir Denver á heimavelli og getur með sigri komist í 3-1.
NBA Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira