Bandaríska hagkerfið tapaði 100 milljörðum á öskunni 26. apríl 2010 08:11
Bandaríska hagkerfið tapaði 813 milljón dollara eða ríflega 100 milljörðum kr. vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Hér er átt við fyrstu sex dagana sem gosið stóð og lamaði meir og minna flugsamgöngur í norðurhluta Evrópu.Fjallað er um málið í blaðinu The Washington Post. Þar segir að upphæðin byggi á útreikingum Ferðasamtaka Bandaríkjanna, U.S. Travel Association, og sýni hreint tap flugfélaga og ferðamannaiðnaðarins vestan hafs vegna öskunnar.Rætt er við Roger Dow forseta fyrrgreindra samtaka sem gagnrýnir harðlega í hve miklum mæli flugmferðin um norðurhluta Evrópu var stöðvuð. Hann segir að á fyrstu fimm dögum gossins hafi bandarísk flugfélög þurft að fella niður 78% af áætlunarferðum sínum til Evrópu.Ferðasamtökin áætla að tekjur af hverri farþegaþotu sem komi til Bandaríkjanna nemi um 450 þúsund dollurum. Hér er um að ræða meðaltal þess sem farþegar þotunnar eyða í landinu í heimsóknum sínum.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira